- Auglýsing -
- Auglýsing -

Landsliðin

- Auglýsing -

Frábært tækifæri fyrir okkar efnilega lið

Landslið kvenna, skipað leikmönnum 18 ára og yngri hélt af landi brott í morgun til Danmerkur þar sem það leikur tvo leiki við danska landsliðið í Kolding um helgina. Leikirnir eru liður í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir þátttöku í...

Verðugt verkefni til framfara

„Það verður verðugt verkefni fyrir okkur að mæta frábæru liði Svía. Við hlökkum til leiksins og ætlum að njóta þess að reyna okkur við eitt besta lið heims sem hafnaði í fjórða sæti á Ólympíuleikunum í sumar. Máta okkur...

Dagskráin: Barist í Kórnum og í Eskilstuna

Þriðja umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld með einum leik. FH-inga koma þá í heimsókn í Kórinn í Kópavogi og sækja nýliða HK heim. Flautað verður til klukkan 19.30. Viðureignin í kvöld verður annar leikur nýliða HK í...
- Auglýsing -

Tyrkjum tókst ekki að leggja stein í götu Serba

Serbía vann öruggan sigur á Tyrklandi í sjötta riðli undankeppni Evrópumótsins í handknattleik kvenna. Lið þjóðanna eru með íslenska og sænska liðinu í riðli en Ísland og Svíþjóð eigast við á morgun klukkan 17 í Eskilstuna í Svíþjóð. Serbar...

Myndir: Síðasta æfing fyrir orrustuna við Svía

Kvennalandsliðið í handknattleik æfði í kvöld í keppnissalnum í STIGA Sport Arena í Eskilstuna þar sem viðureign þess við sænska landsliðið fer fram á morgun í 6. riðli undankeppni Evrópumótsins. Um var að ræða aðra æfingu dagsins og eins...

Saga Sif kölluð strax til Svíþjóðar – Hafdís meiddist

Saga Sif Gísladóttir, markvörður Vals, hefur verið kölluð inn A-landslið kvenna í handknattleik sem mætir Svíþjóð í undankeppni EM 2022 Eskilstuna á morgun. Hafdís Renötudóttir meiddist á ökkla á æfingu í morgun og verður Saga Sif því til taks...
- Auglýsing -

Kom mér í opna skjöldu

„Það kom mér mjög á óvart að vera valin í æfingahópinn og ég reiknaði alls ekki með að vera í endanlegum hóp sem fór til til Svíþjóðar,“ sagði Elísa Elíasdóttir, 17 ára Vestmannaeyingur, sem er í A-landsliðshópnum sem mætir...

Hildigunnur tekur slaginn á nýjan leik

Hildigunnur Einarsdóttir, leikmaður Vals, er mætt í landsliðið í handknattleik aftur eftir tveggja ára fjarveru. Hún tók síðast þátt í landsleikjum gegn Króötum og Frökkum í lok september 2019. Reyndar hafa ekki farið fram margir landsleikir síðan en í...

Áfangi hjá Unni eftir fjögur ár

Unnur Ómarsdóttir, vinstri hornamaður nýkrýndra bikarmeistara KA/Þórs, leikur sinn 30. landsleik á morgun þegar íslenska landsliðiðí handknattleik mætir því sænska í Eskilstuna í fyrstu umferð 6. riðils undankeppni EM. Þetta verður jafnframt fyrsti landsleikur Unnar í fjögur ár. „Það er...
- Auglýsing -

Sú tíunda á leið í 100 leikja klúbbinn – vissi ekki af því

„Ég sá þetta fyrst í fréttinni, hafði bara ekkert leitt hugann að þessu fyrr en þá,“ sagði Rut Arnfjörð Jónsdóttir, landsliðskona í handknattleik, spurð út í hvort hún hefði haft augastað á þeim áfanga sem hún nær annað kvöld...

Myndir: Hristu úr sér ferðalagið á léttri æfingu

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna kom til Eskilstuna í Svíþjóð um kvöldmatarleytið í kvöld en það mætir sænska landsliðinu á fimmtudaginn í fyrstu umferð 6. riðils undankeppni Evrópumótsins. Að loknu snarli var farið á æfingu í STIGA Sports Arena þar...

Ágúst Þór og Elísa á ferð og flugi

Ágúst Þór Jóhannsson, aðstoðarþjálfari A-landsliðs kvenna, og Eyjamærin Elísa Elíasdóttir verða á ferð og flugi næstu daga. Þau fór út með landsliðinu til Svíþjóðar í morgun og taka þátt í leiknum við Svía í undankeppni EM á fimmtudagskvöld. Í...
- Auglýsing -

Munum láta til okkar taka enda ekki skoðanalausar

„Ég er mjög spennt fyrir þessu verkefni og ánægjulegt að HSÍ hafi ákveðið að fá okkur Hröbbu með í þetta því við erum kannski ekki þær auðveldustu til að vinna með,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og hló þegar handbolti.is...

Tveir nýliðar eru í hópnum sem fór til Svíþjóðar

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna hélt af landi brott í morgun áleiðis til Eskilstuna í Svíþjóð þar sem það mætir sænska landsliðinu í fyrstu umferð 6. riðils undankeppni Evrópumótsins á fimmtudaginn. Arnar Pétursson valdi í síðustu viku 19 leikmenn...

Kristín verður ekki með í leiknum við Íslendinga

Sænska landsliðskonan Kristín Þorleifsdóttir, sem á íslenska foreldra, verður ekki í sænska landsliðinu sem mætir íslenska landsliðinu í fyrstu umferð undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í Eskilstuna í Svíþjóð á fimmtudaginn. Kristín er meidd og varð að draga sig út...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -