- Auglýsing -
- Auglýsing -

Verðugt verkefni til framfara

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari. Mynd/EPA

„Það verður verðugt verkefni fyrir okkur að mæta frábæru liði Svía. Við hlökkum til leiksins og ætlum að njóta þess að reyna okkur við eitt besta lið heims sem hafnaði í fjórða sæti á Ólympíuleikunum í sumar. Máta okkur við það og taka með okkur heim jákvæða upplifun inn í næsta leik og framhaldið á því starfi sem við erum í saman,“ sagði Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik í samtali við handbolta.is.

Talsverðar breytingar

Í kvöld hefst undankeppni Evrópmóts kvenna í handknattleik hjá íslenska landsliðinu með viðureign við sænska landsliðið í Stiga Sport Arena í Eskilstuna. Vissulega verður ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur af hálfu íslenska landsliðsins sem hefur gengið í gegnum talsverðar breytingar á síðustu árum.


Undirbúningur hefur verið stuttur, snarpur og markviss. Arnar leggur áherslu á að leikmenn njóti leiksins, leggi sig fram og stígi skref í átt til framfara. Stutt er í næsta leik í keppninni, gegn Serbum á Ásvöllum á sunnudaginn.

Viljum lengja góðu kaflana

„Okkar markmið er að leggja hjarta og sál í leikinn og uppskera í samræmi við það sem við sáum. Við erum staðráðin í að bæta okkar leik, lengja góðu kaflanum, taka framförum, vera jákvæð og njóta þess að vera í þessari stöðu,“ sagði Arnar sem sagði ekkert launungarmál að sænska lið væri sterkt enda liggja staðreyndir þess fyrir frá keppni á síðustu Ólympíuleikum.


„Sænska liðið getur mikið og margt, bæði í vörn og sókn, Það hefur mörg vopn í sínu búri. Hraðinn er mikill, varnarleikurinn er fjölbreyttur, markverðirnir góður. Heilt yfir mjög heilsteypt og skemmtilegt lið,“ sagði Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðsins í stuttu samtali við handbolta.is.


Leikur Svíþjóðar og Íslands hefst klukkan 17. Handbolti.is er í Eskilstuna og fylgist með leiknum í beinni textalýsingu úr keppnishöllinni. Leikurinn verður einnig sýndur á RÚV.

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

- Auglýsing -