- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

„Ævintýri sem ég gat ekki annað en hoppað á“

„Þetta er einfaldlega ævintýri sem gat ekki annað en hoppað á. Að fá að upplifa gjörólíka menningu, aðra siði og breyta um leið áhugamáli yfir í atvinnu,“ sagði Ólafur Brim Stefánsson tilvonandi handknattleiksmaður Al Yarmouk í samtali við handbolta.is....

Aron og Dagur áfram á sigurbraut í Hangzhou

Aron Kristjánsson og liðsmenn hans í landsliði Barein unnu í morgun afar mikilvægan sigur á Suður Kóreu í fyrst leik liða þjóðanna í átta liða úrslitum Asíuleikanna í Hangzhou í austurhluta Kína. Eftir afar jafnan leik um skeið í...

Molakaffi: Arnór, Dagur, Harpa, Sigvaldi, Bjarki

Arnór Viðarsson og Dagur Arnarsson léku ekki með ÍBV gegn Gróttu í Olísdeild karla í handknattleik í gær. Arnór er tognaður á nára og Dagur meiddur á ökkla. Því miður hefur handbolti.is ekki upplýsingar um hversu lengi þeir félagar...
- Auglýsing -

Þriðji sigurinn hjá Arnari Birki – Döhler fór á kostum

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fjögur mörk þegar nýliðar Amo Handboll unnu sinn þriðja leik í kvöld í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik á heimavelli, í Alstermo. Amo lagði HK Aranäs, 33:27, eftir að hafa verið átta mörkum yfir að loknum...

Elliði Snær með fimm í fimm marka sigri

Gummersbach vann annan leik sinn í röð í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld þegar liðið lagði HC Erlangen á heimavelli, 33:28. Eftir skrykkjótt gengi í fyrstu leikjunum er vonandi að Gummersbach-liðið sé að ná sér á strik....

Handkastið: Langaði meira að vera áfram úti

„Það var mikill áhugi hjá mér að fara þangað en eftir að hafa velt málum fyrir mér þá langaði mig meira að vera áfram úti sem atvinnumaður,“ segir Arnar Birkir Hálfdánsson stórskytta og leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Amo í hlaðvarpsþættinum...
- Auglýsing -

Molakaffi: Arnór, Óðinn, Axel, Stiven, Dunarea Braila, Skube og fleira

Arnór Atlason fagnaði sigri á heimavelli með liði sínu TTH Holstebro á liðsmönnum Kolding í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í gær, 38:29,  eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 18:13. Holstebro færðist upp í 10. sæti...

Meistaradeild karla – fjórir leikir í tveimur riðlum

Fjórir leikir fóru fram í Meistaradeild karla í handknattleik í kvöld. Haukur Þrastarson var í leikmannhópi Kielce í fyrsta sinn á leiktíðinni í leik í Meistaradeildinni. Hann kom ekkert við sögu í leiknum. Magdeburg vann Celje, 39:23, á heimavelli...

Andrea og liðsfélagar unnu góðan sigur á heimavelli

Andrea Jacobsen og liðsmenn Silkeborg-Voel færðust upp í fimmta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld með þriggja marka sigri á København Håndbold, 33:30, á heimavelli í fimmtu umferð deildarinnar. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn. Þetta var þriðji sigur Silkeborg-Voel...
- Auglýsing -

Eitt mark felldi Erling og Sádana – Aron og Dagur í átta liða úrslit

Landslið Sádi Arabíu undir stjórn Erlings Richardssonar komst ekki í átta liða úrslit handknattleikskeppni Asíuleikanna í morgun. Sádi Arabía og Íran skildi jöfn, 23:23, í síðasta leik D-riðils keppninnar. Hvort lið hlaut 3 stig í þremur leikjum. Íran komst...

Molakaffi: Anna Úrsúla, Örn Ingi, Díana Dögg, Sandra, heimsmet?, hagnaður

Handknattleikskonan Anna Úrsúla Guðmundsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á skrifstofu íþróttafélagsins Gróttu. Anna Úrsúla er Gróttufólki að góðu kunn enda uppalin innan raða félagsins sem iðkandi hjá handknattleiksdeild, segir í tilkynningu. Hún var fyrirliði meistaraflokks þegar liðið varð Íslands-,...

Guðmundur Þórður hrósaði sigri á útivelli

Reikna má að kátt verði á hjalla hjá liðsmönnum Guðmundar Þórðar Guðmundsson í rútunni heim eftir sigur Fredericia HK á Sønderjyske, 31:27, á útivelli í kvöld í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Leikurinn markaði upphaf sjöttu umferðar deildarinnar. Færðist Fredericia...
- Auglýsing -

Donni í liði umferðarinnar og er á meðal markahæstu í Frakklandi

Landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni, hefur farið á kostum í upphafsleikjum PAUC í frönsku 1. deildinni í handknattleik. Hann var besti maður vallarins og skoraði 11 mörk á síðasta fimmtudag þegar PAUC vann Saran á heimavelli 35:31. Fyrir frammistöðuna...

Molakaffi: Elliði Snær, Servaas, Bothe, Nenadić, Wiede

Gummersbach vann Stuttgart, 31:29, í Porsche-Arena í Stuttgart í gærkvöld í viðureign liðanna í sjöttu umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö mörk fyrir Gummersbach sem lyftist upp í 12. sæti deildarinnar með...

Annar sigur hjá Degi – Erlingur á leið í úrslitaleik

Japanska landsliðið undir stjórn Dags Sigurðssonar er komið í átta liða úrslit í handknattleikskeppni karla á Asíumótinu sem stendur yfir í Hangzhou í austurhluta Kína. Snemma í morgun að íslenskum tíma vann japanska landsliðið það íranska mjög örugglega, 33:21,...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -