Úrslitakeppnin um danska meistaratitilinn í handknattleik karla hófst í gær. Eins og síðustu ár fer keppnin fram í tveimur fjögurra liða riðlum. Leikin verður tvöföld umferð, þ.e. liðin mætast tvisvar sinnum, heima og að heiman. Liðin tvö sem höfnuðu...
Handknattleiksmaðurinn Daníel Þór Ingason verður ekki áfram í herbúðum danska úrvalsdeildarliðsins Ribe-Esbjerg eftir yfirstandandi keppnistímabil. Hann staðfesti þetta við handbolta.is. Daníel Þór er vongóður um að ganga frá samningi við annað lið á næstunni.
„Það hefur legið fyrir síðan í...
Vonir Grétars Ara Guðjónssonar og félaga í Nice um að komast í úrslitakeppni frönsku B-deildarinnar dvínuðu í gær með tapi fyrir Massy Essonne, 28:25, á útivelli. Nice er í sjöunda sæti þegar liðið á fjóra leiki eftir og fimm...
Arnar Gunnarsson, þjálfari Neistans, og leikmenn hans hlutu í kvöld bronsverðlaun í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik karla. Neistin vann KÍF frá Kollafirði, sem Hörður Fannar Sigþórsson leikur með, 35:33, í viðureign um bronsið.
Hörður og félagar, sem voru hársbreidd frá...
Díana Dögg og samherjar hennar í BSV Sachsen Zwickau halda ótrauðar áfram á sigurbraut í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Í dag unnu þær TSV Nord Harrislee, 27:24, á útivelli eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik,...
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og samherjar hans í Skövde höfðu betur í fyrsta leik sínum við IFK Kristianstad í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag, 25:22. Leikið var í Skövde. Vinna þarf þrjá leiki til þess að öðlast sæti...
Íslendingaliðið Ribe-Esbjerg slapp með skrekkinn og annað stigið úr viðureign sinni á heimavelli við Lemvig í fyrstu umferð í kjallarakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Hinn þrautreyndi markvörður Ribe-Esbjerg, Søren Rasmussen, varði vítakast á síðustu sekúndu og bjargaði þar með...
Sandra Erlingsdóttir átti frábæran leik í lokaumferð dönsku B-deildarinnar í handknattleik í dag þegar lið hennar, EH Aalborg, tapaði fyrir efsta liði deildarinnar, Ringköbing, 34:31, í Ringköbing. EH Aalborg var öruggt með annað sæti deildarinnar fyrir leikinn en það...
„Ég er að bíða eftir að barni,“ sagði handknattleiksmarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson við handbolta.is þegar leitað var skýringa á því af hverju hann var ekki með Bietigheim í kvöld þegar liðið vann Lübbeck-Schwartau, 24:22, á útivelli í þýsku 2....
Oddur Gretarsson og félagar í Balingen máttu þola sárt tap á heimavelli fyrir Göppingen í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld, 31:30. Tim Kneule skoraði sigurmark Göppingen þegar fimm sekúndur voru til leiksloka. Oddur skoraði fimm mörk í...
Franska liðið Nantes tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með frábærum sigri á pólska liðinu Vive Kielce sem Sigvaldi Björn Guðjónsson leikur með, 34:31, í síðari leiknum í 16-liða úrslitum keppninnar en leikið var í...
Nancy, liðið sem Elvar Ásgeirsson leikur með með í frönsku B-deildinni, komst aftur inn á sigurbraut í kvöld með naumum sigri á Sélestad, 27:26, á heimavelli. Elvar skoraði fjögur mörk, átti jafnmargar stoðsendingar og vann þrjú vítaköst.
Nancy er áfram...
Arnór Atlason og félagar í danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold eru komnir í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir ævintýralegan sigur á Porto, 27:24, á heimavelli í dag. Álaborgarliðið komst áfram á fleiri mörkum á útivelli þar sem liðið skoraði...
Bjarki Már Elísson og samherjar hans í þýska liðinu Lemgo komu saman til æfinga á nýjan leik í dag. Hálf þriðja vika er liðin síðan þeir máttu síðast mæta á æfingu. Kórónuveiran stakk sér niður í herbúðir liðsins og...
Lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar, Donna, PAUC-Aix, saknaði íslensku stórskyttunnar í kvöld þegar það fékk grannliðið Montpellier í heimsókn í frönsku 1. deildinni í handknattleik. Montpellier vann með fimm marka mun, 32:27, og situr eftir sem áður í öðru sæti...