Bjarki Már Elísson og samherjar hans í þýska liðinu Lemgo komu saman til æfinga á nýjan leik í dag. Hálf þriðja vika er liðin síðan þeir máttu síðast mæta á æfingu. Kórónuveiran stakk sér niður í herbúðir liðsins og þótt hún hafi ekki smitað nema örfáa þá urðu allir leikmenn auk þjálfara og starfsmanna að vera í sóttkví í tvær vikur.
Ekki eru allir leikmenn þó klárir í slaginn. Einhverjir þeirra sem veiktust eru enn undir eftirliti lækna og mega ekki æfa af fullum þunga.
Leikmenn áttu eftir mætti að halda sér við meðan þeir voru í sóttkví og fengu tæki og tól send heim.
Meðan sóttkví stóð yfir varð að fresta þremur leikjum Lemgo-liðsins sem bætist nú við þegar þéttskipaða dagskrá. Fyrsti leikur Lemgo eftir hléið verður gegn GWD Minden á heimavelli á sunnudaginn.