Það var á brattann að sækja hjá Íslendingaliðinu Vendsyssel í dag þegar það sótti efsta lið dönsku úrvalsdeildarinnar, Viborg, heim enda eru liðin hvort á sínum enda stöðutöflunnar. Frá upphafi var ljóst að um einstefnu yrði að ræða að...
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark þegar Barcelona vann Benidorm, 41:28, í spænsku 1. deildinni í handknattleik í gær en leikið var í Barcelona. Aron og félagar voru sex mörkum yfir í hálfleik, 22:16. Þetta var annar leikur Barcelona á...
Daníel Freyr Andrésson, markvörður, og samherjar hans í Guif frá Eskilstuna, fóru illa að ráði sínu í kvöld þegar þeir töpuðu fyrir Önnereds á útivelli, 32:27, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Eftir jafnan fyrri hálfleik, fataðist Daníel Frey og...
Grétar Ari Guðjónsson og félagar í Nice léku ekki gegn Besanco í frönsku B-deildinni í handknattleik í kvöld eins og til stóð vegna veikinda í herbúðum Besanco. Grétar Ari sagði við handbolta.is í dag að ekki væri á hreinu...
Upp hefur komið smit meðal samherja Arons Dags Pálssonar handknattleiksmanns hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Alingsås. Þar af leiðandi hefur leik Alingsås og Aranäs sem fram átti að fara í kvöld verið frestað um ótiltekinn tíma.„Við fórum í próf í...
Tvö varin í skot í röð hjá Viktori Gísla Hallgrímssyni landsliðsmarkverði og markverði danska liðsins GOG í leik gegn Eurofarm Pelister í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik voru bestu tilþrifin af fimm á lista Handknattleikssambands Evrópu sem tekinn...
„Ég er mjög ánægður að fá kallið aftur inn í landsliðið,“ sagði Kristján Örn Kristjánsson, Donni, handknattleiksmaður við handbolta.is í gærkvöld en í gær var hann valinn í landsliðið fyrir leikinn gegn Litháen í næstu viku ásamt Magnúsi Óla...
„Við megum vera tíu saman á æfingu en leikjum í deildinni hefur verið frestað til að minnsta kosti 23. nóvember,“ sagði Sandra Erlingsdóttir, landsliðskona í handknattleik og leikmaður toppliðs dönsku 1. deildarinnar við handbolta.is í kvöld eftir að tilkynnt...
Neistin, sem Arnar Gunnarsson þjálfar og Finnur Hansson leikur með, tapaði öðrum leiknum í röð í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld þegar liðið sótti Team Klaksvik heim í Klaksvikar badmintonhöll, 33:32.Neistin var með tveggja marka forskot...
Sigvaldi Björn Guðjónsson og félagar í pólska meistaraliðinu Vive Kilece sluppu fyrir horn og með eitt stig úr heimsókn sinni til Porto í sjöttu umferð Meistaradeild Evrópu í handknattleik í kvöld, 32:32.Porto-liðið var sterkara lengst af en þegar...
Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar í Team Tvis Holstebro létu næst neðsta lið dönsku úrvalsdeildarinnar, Lemvig, ekki vefjast fyrir sér í kvöld í 10. umferð deildarinnar þegar liðin leiddu saman hesta sína í Holstebro.Heimamenn voru með öll tromp á...
Stuttgart komst í kvöld í efsta sæti 1. deildar karla í Þýskalandi með sex marka sigri á Leipzig á heimavelli, 30:24. Liðið hefur ekki byrjað betur í deildinni í sögu sinni sem er reyndar ekki löng þegar litið er...
Leikmönnum Barcelona og Aalborg Håndbold héldu engin bönd þegar þeir mættust í Barcelona í kvöld í sjöttu umferð Meistaradeildar karla í handknattleik. Alls voru skoruð 75 mörk í hröðum og skemmtilegum leik þar sem varnarleikurinn var látinn lönd og...
Opnað hefur verið fyrir kosningu á bestu handknattleiksmönnum áratugarins (2011-2020) á vefsíðu handball-planet. Handbolti.is sagði fyrr í vikunni frá þessu væntanlega kjöri sem handball-planet stendur fyrir í tilefni af því áratugur er liðin frá því að síðan fór í...
Viktor Petersen Norberg skoraði sjö mörk fyrir Drammen og nýbakaður landsliðsmaður Óskar Ólafsson aðeins eitt þegar Drammen-liðið tapaði fyrir Kolstad, 27:21, á heimavelli Kolstad í norsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Leikmenn Kolstad voru með tögl og hagldir frá upphafi til...