Olís karla

- Auglýsing -

Þórir tekur við búi af Halldóri Jóhanni

Þórir Ólafsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik og atvinnumaður í Þýskalandi og í Póllandi um árabil, hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Selfoss í handknattleik. Hann tekur við af Halldóri Jóhanni Sigfússyni. Halldór Jóhann hefur verið ráðinn þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Tvis...

Halldór Jóhann er á leiðinni til Danmerkur

Halldór Jóhann Sigfússon, sem þjálfað hefur karlalið Selfoss undanfarin tvö ár, er að hverfa frá störfum hjá félaginu og flytja til Danmerkur, eftir því sem Visir.is segir frá í dag samkvæmt heimildum. Heimildir handbolta.is herma að Halldór Jóhann verði annar...

Jóel lánaður vestur á Nes

Jóel Bernburg, tvítugur línumaður Vals, hefur skrifað undir eins árs lánssamning við Handknattleiksdeild Gróttu. Hann er uppalinn í KR en skipti ungur að árum yfir í Val þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Jóel skoraði 43 mörk í þeim...
- Auglýsing -

Svanur Páll setur á fulla ferð

Svanur Páll Vilhjálmsson hefur ákveðið að hella sér út í handknattleikinn á nýjan leik eftir að hafa rifað seglin um skeið. Af þessu tilefni hefur Svanur Páll samið við uppeldisfélag sitt ÍBV fyrir næsta keppnistímabil. Handknattleiksdeild ÍBV segir frá...

Titilvörnin hefst í Mosfellsbæ 8. september

Íslandsmeistarar Vals í handknattleik karla hefja titilvörnina í Mosfellsbæ fimmtudaginn 8. september samkvæmt frumdrögum að leikjadagskrá Olísdeildar karla sem HSÍ hefur gefið út. Samkvæmt drögunum fara fjórir af sex leikjum fyrstu umferðar fram 8. september. Þar á meðal er...

Molakaffi: Daníel Andri, Boquist, staðfest fjölgun hjá yngri landsliðum

Daníel Andri Valtýsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Gróttu. Daníel er 25 ára gamall og kom til liðs við Gróttu fyrir þremur árum. Hann er markmaður og er uppalinn á Hlíðarenda. Daníel lék stærstan hluta leikjanna...
- Auglýsing -

Hlaupið hefur á snærið hjá meistaraliði Vals

Handknattleiksmaðurinn Aron Dagur Pálsson hefur ákveðið að snúa heim eftir þriggja ára veru í Svíþjóð og Noregi og ganga til liðs við Íslands-, deildar- og bikarmeistara Vals. Aron sem er 25 ára og getur jafnt leikið sem miðjumaður og skytta...

Fjölnismaður færir sig yfir til Gróttu

Handknattleiksmaðurinn Elvar Otri Hjálmarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu. Hann kemur til félagsins frá Fjölni en Elvar Otri er 21 árs gamall og var hluti af sigursælum 2000 árgangi í Fjölni í yngri flokkunum þar sem...

Ari Pétur heldur áfram á Nesinu

Ari Pétur Eiríksson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Gróttu á Seltjarnarnesi. Ari Pétur er örvhentur leikmaður og leikur aðallega sem hægri skytta. Hann er nýorðinn tvítugur og hefur leikið með flestum yngri landsliðum Íslands. Ari lék...
- Auglýsing -

Þráinn Orri verður um kyrrt

Línu- og varnarmaðurinn Þráinn Orri Jónsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka til næstu tveggja ára. Þráinn Orri kom til Hauka fyrir tveimur árum eftir að hafa leikið með Elverum í Noregi og Bjerringbro-Silkeborg í Danmörku um þriggja...

Álaborgari bætist í hópinn hjá Gróttu

Grótta hefur samið við tvítugan danskan handknattleiksmann, Theis Koch Søndergård, um að leika með liði félagsins í Olísdeild karla á næsta keppnistímabili. Søndergård kemur úr akademíu Álaborgar og hefur samið til eins ár við Gróttu. Í tilkynningu frá Gróttu segir...

FH krækir í hornamann frá Víkingi

Arnar Steinn Arnarsson hefur ákveðið að söðla um og leika áfram í Olísdeild karla á næsta leiktíð. Þess vegna hefur hann skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild FH. Arnar Steinn er örvhentur hornamaður og kemur til FH frá...
- Auglýsing -

Rašimas er heiðurssendiherra heimabæjar síns

Vilius Rašimas markvörður handknattleiksliðs Selfoss og landsliðs Litáen var á dögunum sæmdur nafnbótinni heiðurssendiherra heimabæjar síns, Tauragė í Litáen. Sunnlenska.is segir frá þessu og vitnar í Facebook-síðu bæjarstjórans í Tauragė, Dovydas Kaminskas. Í samtali við sunnlenska.is segist Rašimas vera stoltur...

Hef aldrei kynnast annarri eins ástríðu fyrir handbolta og hjá KA

Óðinn Þór Ríkharðsson kom heim á síðasta sumri eftir nokkurra ára veru í Danmörku. Gekk hann til liðs við KA. Óhætt er að segja að Óðinn Þór hafi sprungið út, farið á kostum með KA-liðinu. Þegar upp var staðið...

Bjarni tekur við á nýjan leik

Bjarni Fritzson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokksliðs karla hjá ÍR. Hefur félagið gert við hann þriggja ára samning. Bjarni var einnig þjálfari ÍR-liðsins frá 2014 til 2020 og þekkir vel til í herbúðum þess. ÍR vann sér sæti í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -