- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís karla

- Auglýsing -

Dagskráin: Sautjándu umferð lýkur á Akureyri

Í kvöld lýkur 17.umferð Olísdeildar karla með viðureign FH og KA í KA-heimilinu. Flautað verður til leiks klukkan 18. FH-ingar hafa dvalið í höfuðstað norðurlands síðan á miðvikudag að þeir mættu Þór í 8-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins. FH hafði betur...

Neðstu liðin óheppin að vinna ekki – úrslit og markaskorarar kvöldsins

Mikil spenna var í fjórum af fimm leikjum kvöldsins í Olísdeild karla í handknattleik. Enduðu þrír þeirra með jafntefli en í fjórða spennuleiknum tókst ÍBV að vinna Fram með þriggja marka mun, 34:31, eftir nokkurn darraðardans í lokin. Rúnar...

Leikjavakt: Hver er staðan?

Fimm leikir fara fram í 17. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. 18.00 ÍBV – Fram. 19.30 Víkingur – Afturelding. 19.30 Grótta – Selfoss. 19.30 HK – Haukar. 20.00 Valur – Stjarnan. Handbolti.is hefur auga á leikjunum, uppfærir stöðuna í þeim með reglubundnum...
- Auglýsing -

Keppnistímabilinu er lokið hjá Árna Braga

Árni Bragi Eyjólfsson leikur ekki fleiri leiki með Aftureldingu í Olísdeildinni á þessu keppnistímabili. Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, staðfesti þetta við handbolta.is í dag. Árni Bragi fór úr hægri axlarlið í leik Aftureldingar og Selfoss á Varmá í síðustu...

Dagskrá: Fimm leikir og fjör á keppnisvöllum

Fimm leikir af sex í 17. umferð Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Sjötta og síðasta viðureignin fer fram annað kvöld þegar KA og FH eigast við. Leiknum var frestað um sólarhring vegna viðureignar Þórs og FH...

Harðákveðinn í að hætta eftir höfuðhögg

Brynjar Darri Baldursson, sem verið hefur markvörður Stjörnunnar um nokkurra ára skeið og lék áður með FH, er harðákveðinn í að leggja handboltaskóna á hilluna eftir að hafa fengið annað höfuðhögg á einu ári í leik Stjörnunnar og KA...
- Auglýsing -

Meiddist á hné og kallaður til baka úr láni

Valur hefur kallað línumanninn Andra Finnsson til baka úr láni hjá Gróttu. Andri lék einn leik með Gróttu í Olísdeildinni, gegn Fram. Hann meiddist illa á hné á æfingu hjá Gróttuliðinu eftir fyrrgreindan leik. Talið er líklegt að svo...

Mæta Þór á miðvikudag og KA á föstudag

Ákveðið hefur verið að viðureign Þórs og FH í átta liða úrslitum Coca Cola-bikars karla í handknattleik hefjist klukkan 19 á miðvikudaginn í Íþróttahöllinni á Akureyri, heimavelli Þórsara. FH vann Hörð í 16-liða úrslitum í gær, nokkuð örugglega, á...

Haukar einir efstir – úrslit og markaskor dagsins

Haukar eru einir í efsta sæti Olísdeildar karla í handknattleik eftir leiki dagsins en fjórir leikir fóru fram í dag og í kvöld. Haukar unnu stórsigur á Gróttumönnum í leik þar sem þeir síðarnefndu voru allt frá upphafi a.m.k....
- Auglýsing -

Þurftum á þessum sigri að halda

„Við þurftum á sigri á halda í leiknum. Okkar megin markmið var að ná í stigin tvö og það tókst,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, í samtali við handbolta.is eftir sigurinn á Víkingi, 25:23, í Olísdeild karla í handknattleik...

Lögðu grunn að sigrinum í fyrri hálfleik

Framarar báru sigurorð af Víkingi, 25:23, í upphafsleik 16. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í Framhúsinu í dag. Fram var sjö mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:7. Segja má að góður fyrri hálfleikur hafi lagt grunn að sigrinum....

Frestað um sólarhring

Vegna ófærðar hefur leik Harðar og FH í 16-liða úrslitum Coca Cola bikar karla í handknattelik verið frestað til morguns, sunnudags. Vonast er til að þá verði hægt að flauta til leiks klukkan 15. Ófært er með flugi...
- Auglýsing -

Dagskráin: Stefnir í að tveir leikir fari fram

Einn leikur verður leikinn í Olísdeild karla í handknattleik í dag. Víkingar sækja Framara heim klukkan 14. Allur aðgangseyrir að leiknum rennur til Ingunnar Gísladóttur og fjölskyldu til að standa straum af aðgerð sem dóttir Ingunnar gekkst undir á...

Einn sá efnilegasti er á leiðinni til FH

Hinn efnilegi handknattleiksmaður úr HK, Einar Bragi Aðalsteinsson, er sagður gangi til liðs við FH eftir keppnistímabilið í Olísdeildinni í sumar. Frá þessu var greint á Vísir.is í gærkvöldi en Stefán Árni Pálsson stjórnandi Seinni bylgjunnar á Stöð2Sport sagði...

Tvö síðustu mörkin tryggðu ÍBV annað stigið

Leikmenn ÍBV skoruðu tvö síðustu mörkin í KA-heimilinu í kvöld og kræktu þar með í annað stigið í heimsókn sinni til KA, 32:32. Heimamenn voru fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 20:15. KA-menn geta nagað sig í handarbökin yfir...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -