Handknattleiksmaðurinn Ægir Hrafn Jónsson hefur ákveðið að leggja handknattleiksskóna til hliðar eftir nærri aldarfjórðung sem leikmaður í meistaraflokki í hand- og körfuknattleik. Ægir Hrafn lék síðast með Fram. Hann sagði við handbolta.is í morgun vera afar sáttur við ferilinn.
„Ég...
Síðari leikir átta liða úrslita Olísdeildar karla fara fram í kvöld þegar Valur sækir KA-menn heim í KA-heimilið og Stjarnan tekur á móti liði Selfoss í TM-höllinni í Garðabæ. Liðin mætast öðru sinni á föstudaginn.Í kvöld leiða einnig saman...
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í gærkvöld þar sem að umsjónarmenn þáttarins fjölluðu um leikina tvo í 8-liða úrslitum Olísdeildar karla sem fram fóru í gærkvöld. Það var boðið uppá hörkuleik í Eyjum. Voru þeir ánægðir með baráttuna...
Haukar eru komnir með að minnsta kosti annan fótinn í undanúrslit Olísdeildar karla í handknattleik eftir tíu marka sigur á Aftureldingu, 35:25, í fyrri viðureigna liðanna í átta liða úrslitum á Varmá í kvöld. Liðin mætast á ný á...
ÍBV og FH skildu jöfn í hörkuleik í Vestmannaeyjum í kvöld, 31:31, í fyrri viðureign sinni í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. FH-ingar jöfnuðu metin, 28:28, þegar um sex mínútur voru til leiksloka. Þá tóku við æsilegar...
Úrslitakeppni Olísdeildar karla hefst í kvöld og er hún leikin með nýju sniði þetta árið vegna þess hversu mjög er liðið á keppnisárið og að margra mati ekki forsvaranlegt að teygja lopann fram yfir mitt sumar með hefðbundinni úrslitakeppni.
Leikið...
„Tímabilið hefur verið mjög gott og mér gekk hreint frábærlega á seinni hluta þess,“ sagði Árni Bragi Eyjólfsson, leikmaður KA og markakóngur Olísdeildar karla keppnistímabilið 2020/2021 í handknattleik, þegar handbolti.is hitti hann að máli og spurði út í keppnistímabilið....
Japanski handknattleiksmaðurinn Satoru Goto hefur kvatt Gróttu og heldur í dag til Japans eftir að hafa verið í herbúðum Gróttu síðustu 10 mánuði. Eftir því sem næst verður komist er ekki búist við að Goto mæti til leiks hér...
Átta liða úrslit úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik hefjast í kvöld með tveimur leikjum sem fram fara í Vestmanneyjum og Mosfellbæ. Síðari leikirnir tveir í fyrri umferð átta liða úrslita verða annað kvöld.
Úrslitakeppni í Olísdeildar karla verður með öðru...
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út sinn 62. þátt í dag og umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson. Þeir byrjuðu á því í þessum þætti að fara yfir oddaleik KA/Þórs...
Ólafur Gústafsson verður ekki með KA-liðinu í leikjum úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik sem hefst í vikunni. KA mætir Val og verður fyrsti leikur liðanna í KA-heimilinu á þriðjudaginn.
Ólafur er meiddur á hné og er á leið í speglun...
Einn leikmanna Kríu, Aron Valur Jóhannsson, var í gær úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ. Nefndin kemur oftar saman þessa dagana en venjulega sökum þess að þétt er leikið í úrslitakeppni og umspili. Aron Valur gekk...
Penninn var á lofti og handaböndin ekki spöruð á skrifstofu KA á Akureyri í gær þegar tilkynnt var að fjórir leikmenn karlaliðs félagsins hafi ákveðið að taka slaginn áfram með liði félagsins og hripa nöfn sín undir nýja samninga.Um...
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út sinn 61. þátt í dag og umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þessum þætti fóru þeir yfir lokaumferð Olísdeildar karla.
Hæst bar í þessari umferð hasarinn...
Eins og víða hefur komið fram þá féll lið ÍR úr Olísdeild karla í handknattleik eftir að hafa farið í gegnum keppnistímabilið 2020/2021, 22 leiki, án þess að fá stig. Árangursleysi ÍR-inga í deildinni er alls ekkert einsdæmi eins...