- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Snorri Steinn hefur skrifað undir samning til næstu sex ára

- Auglýsing -

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur skrifað undir nýjan samning um þjálfun karlalandsliðsins. Samningurinn gildir til næstu sex ára eða fram yfir Ólympíuleikana í Brisbane 2032.

Um leið hefur Arnór Atlason aðstoðarþjálfari einnig samið við HSÍ til sama tíma og Snorri Steinn.

Handbolti.is sagði síðast íslenskra fjölmiðla frá því síðdegis í gær að samningur við Snorra og Arnór væri í höfn og yrði undirritaður í dag.

HSÍ boðar til fundar: Samkomulag í höfn við Snorra Stein og Arnór


Að sögn Jóns Halldórssonar formanns HSÍ er langtímamarkmið HSÍ að komast inn á næstu tvenna Ólympíuleika, 2028 í Los Angeles og Brisbane í Ástralíu fjórum árum síðar. Síðustu vikur hefur HSÍ m.a. sett sér markmið til lengri tíma sem samningarnir við Snorra Stein og Arnór bera vitni um. Ísland var síðast með á Ólympíuleikunum 2012 í London.

Árangur karlalandsliðsins á næstu tveimur stórmótum, HM 2027 og EM 2028, ræður miklu um það hvort Ísland komist á leikana sumarið 2028.

Snorri Steinn og Arnór tóku við þjálfun karlalandsliðsins mitt árið 2023.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -