Handknattleiksdómararnir Gjorgji Nachevski og Slave Nikolov hafa verið dæmdir í tveggja ára bann frá öllum störfum tengdum handboltaleikjum á vegum Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Auk þess verða þeir að greiða 5.000 evrur í sekt, hvor fyrir sig, ríflega 700 þús kr. Sannað þykir að þeir hafi sent inn fölsuð myndskeið frá þrekprófun af undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið í handknattleik karla. Grunur í þá veru vaknaði í lok desember. Voru Norður-Makedóníumennirnir undir eins settir í skammarkrókinn og dæmdu þeir ekki á mótinu.
Síðustu vikur hefur mál þeirra og fölsuðu myndskeiðin verið rannsökuð auk þess sem þeim gafst kostur á að senda inn greinargerð.
Sem hluti af undirbúningi fyrir EM-mót þurfa öll dómarapör að gangast undir skyldubundna líkamsþjálfun og líkamsástandspróf í aðdraganda stórmóta. Þetta ferli er hannað til að tryggja líkamlegt hæfi dómaranna svo þeir uppfylli kröfur sem til þeirra eru gerðar varðandi líkamlegt ásigkomulag. Dómarar verða að senda inn upptökur frá tveimur þrekprófum, öðru átta vikum fyrir mót og hitt fjórum vikum áður en mót hefst. Þessi myndbönd eru metin af Fitgood Pro, samstarfsfyrirtæki EHF.
Eitt þekktasta dómaraparið
Nikolov og Nachevski hafa dæmt marga af stærstu handboltaleikjum í Evrópu undanfarin ár, bæði á stórmótum landsliða og í Meistaradeild Evrópu.
Nikolov og Nachevski geta áfrýjað dómnum.
Loksins var sagt, hingað og ekki lengra
Eitt þekktasta dómaraparið grunað um fölsun – útilokaðir frá EM



