Adela Eyrún Jóhannsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Sylvía Bjarnadóttir hafa framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Selfoss til næstu þriggja ára.
Adela Eyrún er skytta á nítjánda ári sem hefur leikið með meistaraflokki Selfoss síðustu tímabil og verið að fá stærra hlutverk með hverju árinu. Adela hefur einnig verið í U-20 ára landsliði Íslands í síðustu verkefnum.
Hulda Hrönn er einnig á nítjánda ári og leikur sem skytta. Hún hefur verið í stóru hlutverki með meistaraflokki á þessu tímabili ásamt því að leika með U-20 ára landsliði Íslands.
Sylvía er leikstjórnandi á sautjánda ári sem hefur verið að vinna sig inn í hlutverk í meistaraflokki í vetur. Einnig hefur hún leikið ásamt Adelu og Huldu Hrönn lykilhlutverk með 3. flokki félagsins í vetur.
Eins og nærri má geta er gríðarleg ánægja innan handknattleiksdeildar Selfoss með að þessar þrjár öflugu stúlkur hafi ákveðið að taka slaginn með okkur næstu árin. Það verður mjög gaman að fylgjast með framþróun þeirra á næstunni í vínrauðu Selfosstreyjunni.



