- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Horft til framtíðar með bjartsýni að vopni

- Auglýsing -

Framlenging á samningum við Snorra Stein Guðjónsson landsliðsþjálfara karla og Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfara karla er liður í langtímastefnu HSÍ þar sem horft er markvisst til framtíðar með Ólympíuleikana að leiðarljósi, segir í tilkynningu HSÍ. Fram kom á blaðamannafundi sambandsins í dag að margt er enn þá ófjármagnað í þessari áætlun.

Sérstök áhersla er lögð á undirbúning fyrir stórmót, þar sem næstu verkefni fram að Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 verða lykilþættir í þróun liðsins.


Samkvæmt stefnu sambandsins er lögð áhersla á samfellda þróun hópsins milli stórmóta, þar sem árangur og uppbygging fara saman. Framlenging samninga til 2032 tryggir einnig samfellu í þjálfun og skýra framtíðarsýn fyrir íslenskan karlahandbolta.

Uppbygging framtíðarinnar

Sem hluti af áframhaldandi þróun verður lögð aukin áhersla á styrkingu leikmannahópsins og breidd í íslenskum handbolta.

Þar má nefna:

• Endurvakning B-landsliðs.

• Stofnun og þróun C-landsliðs.

• Aukna áherslu á unga leikmenn sem leika á Íslandi.

• Skýrari brú milli A-landsliðs og yngri landsliða.

Langtímasýnin felur í sér að leikmenn sem í dag tilheyra yngri landsliðum eða C-landsliði verði kjarninn í A-landsliðinu til framtíðar, með sérstaka áherslu á verkefni í kringum Ólympíuleikana 2032.

Skýr stefna og markmið

Stefna HSÍ byggir á trausti, stöðugleika og skýrri framtíðarsýn. Með þessum framlengingum er stigið mikilvægt skref í átt að því að festa Ísland í sessi meðal fremstu handboltaþjóða heims.

Markmið næstu ára eru skýr:

• Að tryggja stöðugan árangur á alþjóðavettvangi.

• Að byggja upp sjálfbæran árangur til framtíðar.

• Að efla samspil milli landsliða á öllum stigum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -