Stiven Tobar Valencia skoraði sjö mörk og var markahæstur hjá Benfica þegar liðið gerði jafntefli við ABC de Braga, 30:30, á heimavelli í gær í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik. Benfica er í þriðja sæti deildarinnar, sex stigum á...
Selfyssingar hrósuðu í fyrsta sinn sigri í Olísdeild karla á leiktíðinni síðdegis í dag þegar þeir lögðu HK í Kórnum, 24:20, í 7. umferð deildarinnar. Grunn að sigrinum lagði Selfossliðið í fyrri hálfleik með öflugum varnarleik sem varð til...
Haukar slógu tvær flugur í einu höggi í dag í Olísdeild kvenna í handknattleik með því annars vegar að verða fyrst liða til þess að vinna Íslandsmeistara Vals og hinsvegar að tylla sér í toppsætið. Í hörkuleik á Ásvöllum...
Afturelding vann hreint ævintýralegan sex marka sigur á norska liðinu Nærbø, 29:23, að Varmá í kvöld og komst þar með áfram í 32-liða úrslit Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla. Samanlagt vann Afturelding með einu marki 51:50. Nærbø, sem vann keppnina...
Þórsarar halda áfram að elta Fjölni eins og skugginn í Grill 66-deild karla í handknattleik. Þór lagði Hörð frá Ísafirði, 33:25, í Höllinni á Akureyri í dag þegar fimmtu umferð deidarinnar lauk. Akureyrarliðið hefur þar með níu stig eins...
Mögulegt er að fylgjast með streymi frá viðureign Aftureldingar og norska liðsins Nærbø í Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla. Leikurinn hefst klukkan 18.30 að Varmá.
Afturelding fékk heimild frá EHF til þess að sýna leikinn. Greiða þarf 15 evrur fyrir...
FH-ingar gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér sæti í 3. umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla með ævintýralegum sigri í Belgrad í dag á RK Partizan. FH vann síðari leikinn ytra í dag með sjö marka mun, 30:23, eftir...
Íslendingaliðið Ribe-Esbjerg vann góðan sigur á næst efsta liði dönsku úrvalsdeildarinnar, Mors-Thy á heimavelli í dag, 30:21, og heldur þar með áfram fimmta sæti deildarinnar með 13 stig eftir 10 leiki, fimm stigum á eftir Aalborg sem á leik...
Japanska landsliðið undir stjórn Dags Sigurðssonar er komið með annan fótinn í undanúrslit í forkeppni Ólympíuleikanna í handknattleik í Asíu. Japanska landsliðið vann í dag sinn þriðja leik og er efst B-riðli keppninnar þegar liðið á einn leik eftir....
Eyjakonan Andrea Gunnlaugsdóttir kunni vel við sig á fjölum íþróttamiðstöðvarinnar í Vestmannaeyjum í dag og lét það ekki slá sig út af laginu að vera markvörður andstæðinga ÍBV að þessu sinni. Hún fór á kostum í marki Fram, varði...