- Auglýsing -
- Auglýsing -

Andrea kunni vel við sig í Vestmannaeyjum

Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Eyjakonan Andrea Gunnlaugsdóttir kunni vel við sig á fjölum íþróttamiðstöðvarinnar í Vestmannaeyjum í dag og lét það ekki slá sig út af laginu að vera markvörður andstæðinga ÍBV að þessu sinni. Hún fór á kostum í marki Fram, varði 19 skot, 50% hlutfallsmarkvarsla, og lagði grunn að sigri Framara á vængbrotnu liði bikarmeistaranna, 23:20, í sjöundu umferð Olísdeildar kvenna.


Andrea fékk ekki á sig mark síðustu átta mínútur leiksins. Félagar hennar nýttu þar með tækifærið til þess að skora þrjú síðustu mörk leiksins og tryggja sér bæði stigin. Fram fluttist þar með upp í þriðja sæti Olísdeildar.

ÍBV var marki yfir í hálfleik, 11:10, eftir jafnan leik. Áfram var jafnt á öllum tölum þangað til sex mínútur voru eftir þegar Elna Ólöf Guðjónsdóttir kom Fram yfir, 21:20. Stigin tvö gáfu Framarar ekki eftir þjálfara liðsins Einari Jónssyni eflaust til gleði en hann átti afmæli í gær.

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa tveir leikmenn ÍBV, Birna Berg Haraldsdóttir og Britney Cots helst úr lestinni á síðustu vikum vegna meiðsla. Einnig er Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir á sjúkralista. Þetta er stórir póstar sem hvorki ÍBV né önnur lið gætu verið án.

Framliðið er jafnt og þétt að sækja í sig veðrið eftir mikla uppstokkun í leikmannahópnum fyrir tímabilið. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

Mörk ÍBV: Elísa Elíasdóttir 5, Sunna Jónsdóttir 4, Karolina Olszowa 3, Sara Dröfn Ríkharðsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Ásdís Guðmundsdóttir 1, Margrét Björg Castillo 1, Birna Dís Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Marta Wawrzykowska 12/2, 34,3%.

Mörk Fram: Lena Margrét Valdimarsdóttir 6/1, Harpa María Friðgeirsdóttir 5, Alfa Brá Hagalín 4, Erna Guðlaug Gunnarsdóttir 4, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 2, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 1, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 19/2, 50%.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -