Andrea Jacobsen skoraði tvö mörk og átti fjórar stoðsendingar þegar lið hennar, Silkeborg-Voel, tapaði fyrir hinu sterka liði Ikast, 30:22, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Andreu var einu sinni vikið af leikvelli. Silkeborg-Voel er í...
Selfyssingar voru allt í öllu með liðum sínum í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla í kvöld. Haukar Þrastarson var í stóru hlutverki í sóknarleik Indurstria Kielce í sigri á Eurofarm Pelister í Norður Makedóníu, 24:21, og Janus Daði Smárason...
Efsta lið Grill 66-deildar kvenna í handknattleik, Selfoss, sló í kvöld út Olísdeildarlið Fram í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins. Að Selfossliðið, sem hefur innan sinna vébanda landsliðsinskonur, næði að vinna Fram kemur e.t.v. ekki í opna skjöldu. Hitt kom meira...
Eftir þrjá tapleiki í röð komst KA inn á sigurbraut á nýjan leik í kvöld þegar liðið sótti heim og lagði Víking, 27:24, í upphafsleik 8. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Leikið var í Safamýri, heimavelli Víkings...
Fjórir leikir hefjast klukkan 19.30. Handbolti.is hyggst fylgjast með þeim eftir mætti og uppfæra stöðuna jafnt og þétt frá upphafi til enda á leikjavakt. Leikirnir eru:
Olísdeild karla: Víkingur - KA.Poweradebikar kvenna, 16-liða úrslit: Víkin: Berserkir – KA/Þór.Sethöllin: Selfoss...
Olísdeildarlið ÍR er komið í átta liða úrslit Poweradebikarsins í handknattleik kvenna eftir að hafa mátt hafa sig allt við til þess að leggja harðskeytt lið Víkings, 21:19, í Safamýrinni í kvöld. Víkingur leikur í Grill 66-deildinni en það...
Sigvaldi Björn Guðjónsson og samherjar í norska meistaraliðinu Kolstad máttu bíta í það súra epli að tapa fyrir Aalborg Håndbold, 27:25, í Álaborg í kvöld í 6. umferð Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Staðan í hálfleik var 17:12, en varnarleikur...
Heimir Ríkarðsson og Einar Jónsson hafa valið tvo hópa til æfinga með U18 ára landsliðinu 2. til 5. nóvember.
Hópur 1:Alexander Ásgrímsson, ÍR.Andri Erlingsson, ÍBV.Andri Magnússon, ÍBVBaldur Fritz Bjarnason, ÍR.Bjarki Már Ingvarsson, Haukum.Daníel Máni Sigurgeirsson, Haukum.Daníel Montoro, Val.Egill Jónsson,...
Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Nordsjælland hefur tekið við þjálfun U20 ára landsliðsins ásamt Einari Andra Einarssyni, alltént hafa þeir félagar valið hóp pilta til æfinga undir merkjum 20 ára landsliðsins.
Undanfarin tvö ár hefur Róbert Gunnarsson verið...
Áfram verður leikið í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ, Poweradebikar kvenna, í kvöld. Fjórir leikir fara fram, hver öðrum meira spennandi. Í gærkvöld komust Grótta, HK og Stjarnan áfram og í kvöld bætast fjögur lið við í átta liða úrslitin....