- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ég er ánægð með leikinn

„Ég er afar sátt við varnarleikinn okkar. Sex núll vörnin stóð nokkuð vel. Heilt yfir voru færslurnar í varnarleiknum góðar auk þess sem við lékum framar en við erum flestar vanar að gera með félagsliðum okkar í deildinni,“ sagði...

Fimm marka sigur á Noregi á Ásvöllum

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann B-landslið Noregs á sannfærandi hátt með fimm marka mun í fyrri viðureign liða þjóðanna á Ásvöllum í kvöld, 31:26, eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 15:14. Liðin mætast á...

Streymi: Ísland – Noregur

Hér fyrir neðan er streymi frá fyrri vináttulandsleik Íslands og Noregs B í handknattleik kvenna sem hefst á Ásvöllum klukkan 19.30. Smellið á rauðu örina hér fyrir neðan. Þá opnast útsendingin. https://www.youtube.com/watch?v=qNZq5QPBkgA

U19 ára landsliðið komið til Tékklands í tvo leiki

U19 ára landslið kvenna er komið til Louny í Tékklandi þar sem það leikur tvo leiki við landslið Tékka á morgun og á laugardaginn. Leikirnir eru liður í undirbúningi beggja landsliða fyrir þátttöku á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í...
- Auglýsing-

Alltaf gaman þegar vel gengur

„Mikil vinna er að baki og vissulega er alltaf gaman þegar vel gengur,“ sagði Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir handknattleikskona úr ÍBV sem er í íslenska landsliðinu í handknattleik sem mætir B-landsliði Noregs í tveimur leikjum á næstu dögum. Þeim fyrri...

Dagskráin: Landsleikur og barátta um annað sætið

Framundan er spennandi kvöld í handknattleiknum hér heima. Kvennalandsliðið mætir B-landsliði Noregs á Ásvöllum klukkan 19.30. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna. Sá síðari verður á sama stað á laugardaginn. Leikirnir eru liður í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir...

Afrakstur mikillar vinnu að komast aftur í landsliðið

Þórey Anna Ásgeirsdóttir handknattleikskona hjá Val hefur leikið afar vel með Val á keppnistímabilinu og því kom fáum á óvart þegar hún var kölluð inn í landsliðið á nýjan leik á dögunum eftir tveggja ára fjarveru. Þórey Anna verður...

Molakaffi: Anton, Jónas, Hafþór, Bjarni, Halldór, Witzke, Nenadic, Martinsen

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma viðureign Þýskalandsmeistara SC Magdeburg og rúmenska meistaraliðisins Dinamo Búkarest í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla sem fram fer í Magdeburg í kvöld. Þetta er sjötti leikurinn sem þeir félagar dæma...
- Auglýsing-

Arnór heldur sínu striki í Vestmannaeyjum

Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við Arnór Viðarsson um framlengingu á samningi hans við félagið. Arnór er kraftmikil skytta sem hefur vaxið gífurlega í sínum leik undanfarin ár. Hann er tvítugur en hefur mikla reynslu í Olís deildinni miðað við aldur....

Aron átti stjörnuleik í Celje

Aron Pálmarsson átti stjörnuleik með Aalborg Håndbold í kvöld þegar liðið vann Celje Lasko í Slóveníu í lokaumferð Meistaradeildar Evrópu í handknattleik, 34:31. Aron skoraði 10 mörk og gaf eina stoðsendingu. Hann var markahæstur hjá danska liðinu. Kristian Bjørnsen...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19393 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -