Tumi Steinn Rúnarsson lék sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu með HSC Coburg í þýsku 2. deildinni í kvöld og fór svo sannarlega vel af stað. Hann skoraði fimm mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar Coburg vann á heimavelli...
Eins árs samningur þýska stórliðsins THW Kiel við franska landsliðsmarkvörðinn Vincent Gérard virðist síst hafa dregið úr vangaveltum og vonum stuðningsmanna liðsins um að Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður íslenska landsliðsins og HBC Nantes komi til THW Kiel. Og það...
Japan og Suður Kórea mætast í úrslitaleik á Asíumóti kvenna í handknattleik á sunnudaginn. Mótið hefur staðið yfir undanfarna daga í Seoul í Suður Kóreu, á slóðum keppnissvæðis Ólympíuleikanna árið 1988.
Það að Japan og Suður Kórea mætast í úrslitaleik...
Jakob Lárusson stýrði liði sínu, Kyndli, til sigurs í sjöunda leiknum í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Kyndill vann þá StÍF með 20 marka mun í Þórshöfn, 40:20.
Turið Arge Samuelsen, fyrrverandi leikmaður Hauka, var yfirburðaleikmaður á vellinum....
Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon báru uppi leik Magdeburg í kvöld þegar liðið sótti eitt stig til Porto í áttundu umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik, 31:31. Gísli Þorgeir skoraði sex mörk og átti hvorki fleiri né...
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson bauð tæplega 6.000 áhorfendum í H-Arena í Nantes í kvöld upp á sýningu þegar lið hans Nantes vann Aalborg Håndbold með sjö marka mun, 35:28, í Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Viktor Gísli varði alls 21...
Framarinn Þorsteinn Gauti Hjálmarsson hefur fengið boð um að mæta í æfingabúðir finnska landsliðsins í handknattleik fyrstu helgina í janúar og taka þátt í fjögurra þjóða æfingamóti í Lettlandi með finnska landsliðinu. Gangi allt upp hjá Þorsteini Gauta gæti...
Íslenskir handknattleiksdómarar verða ekki í eldlínunni á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla sem fram fer í Svíþjóð og í Póllandi frá 11. janúar til 29. sama mánaðar á næsta ári. Alþjóða handknattleikssambandið hefur tilkynnt hvaða 25 dómarapör hafa verið valin...
Valsarinn Arnór Snær Óskarsson er í níunda sæti á lista yfir markahæstu leikmenn Evrópudeildarinnar í handknattleik karla þegar fjórar umferð af 10 eru að baki. Arnór Snær hefur skorað 26 mörk, eða 6,5 mörk að jafnaði í leik. Skotnýting...
Bjarki Már Elísson skoraði ekki mark fyrir Veszprém þegar lið hans tapaði í fyrsta sinn á leiktíðinni í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í gærkvöld í heimsókn til PPD Zagreb, 29:26. PSG komst í efsta sæti A-riðils með sigri á...
FH hafði betur í viðureign sinni við ungmennalið HK í upphafsleikslik 7. umferðar Grill 66-deildar kvenna í handknattleik í Kaplakrika í kvöld, 31:25. FH var með tveggja marka forystu þegar leiktíminn var hálfnaður.
FH var með yfirhöndina í leiknum nánast...
Áfram heldur norska úrvalsdeildarliðið Kolstad, sem landsliðsmennirnir Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson leika með, að rúlla upp andstæðingum sínum í deildarkeppninni. Í kvöld tók Kolstadliðið liðsmenn Kristiansand Topphåndball í karphúsið og vann með 14 marka mun, 39:25,...
Haukur Þrastarson og samherjar í pólska meistaraliðinu Łomża Industria Kielce komust í efsta sæti B-riðils Meistaradeildar Evrópu í kvöld, a.m.k. um stundarsakir, þegar liðið vann norsku meistarana, Elverum, naumlega í Terningen Arena í Elverum, 27:26, í hörkuleik. Kielce var...
Handknattleiksdeild Þórs hefur ráðið bræðurna Geir Kristinn og Sigurpál Árna Aðalsteinssyni þjálfara karlaliðs félagsins sem leikur í Grill66-deildinni. Akureyri.net segir frá ráðningunni í dag. Geir og Sigurpáll taka við af Stevce Alusovski sem leystur var frá störfum í síðustu...
Valsmenn hafa nánast leikið tvo leiki á viku síðasta mánuðinn og áfram verða annir hjá þeim fram í miðjan desember. Fimm leikir standa fyrir dyrum á 12 dögum auk ferðlaga. Valur fer tvisvar til Vestmannaeyja og einu sinni til...