Tveir leikir eru ráðgerðir í Grill66-deildum karla og kvenna í handknattleik í kvöld. Viðureign Selfoss U og Vals U sem frestað var í gær vegna veðurs fer vonandi fram í kvöld í Sethöllinni á Selfossi.
Í Kaplakrika má eiga von...
Berta Rut Harðardóttir skoraði þrjú mörk fyrir Holstebro þegar liðið vann sinn fjórða leik í dönsku 1. deildinni í handknattleik þegar það sótti DHG Odense heim í gær, 32:27. Holstebro féll úr úrvalsdeildinni í vor og virðast leikmenn liðsins...
„Algjörlega frábær leikur hjá stelpunum,“ var það fyrsta sem Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals sagði þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans eftir sjö marka sigur Vals, 31:24, á HC DAC Dunajská Streda í Slóvakíu í kvöld. Sigurinn færir...
Bikarmeistarar Vals léku við hvern sinn fingur í kvöld í Dunajská í Slóvakíu kvöld og lögðu lið HC DAC Dunajská Streda með sjö marka mun, 31:24, í síðari leik liðanna í Evrópubikarkeppninni í handknattleik kvenna. Jafnt var að loknum...
Ungmennalið Fram fagnaði í dag sínum fyrsta sigri í Grill66-deild kvenna á leiktíðinni þegar liðið vann ungmennalið HK örugglega í Kórnum, 34:24, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir, 16:9, þegar fyrri hálfleikur var afstaðinn.
HK-liðið bíður enn eftir fyrsta...
Íslenskir handknattleiksmenn voru í eldlínunni í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag þegar síðustu leikir sjöundu umferðar fóru fram.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú mörk og átti sex stoðsendingar í fjögurra marka sigri meistaraliðsins SC Magdeburg á MT Melsungen,...
Sigvaldi Björn Guðjónsson tryggði Kolstad í gær dramatískan sigur á Drammen úr vítakasti eftir að leiktíminn var á enda, 30:29, í viðureign liðanna sem fram fór í Drammen.
Heimamenn voru með boltann þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Reynd var línusending...
Daníel Þór Ingason var í miklum ham í gær og skoraði átta mörk í níu skotum fyrir Balingen-Weilstetten þegar liðið vann Dormagen, 27:24, á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Oddur Gretarsson, samherji Daníels Þórs, skoraði fjögur mörk,...
KA/Þór er úr leik í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik eftir 11 marka tap í síðari leiknum við HC Gjorce Petrov frá Skopje í Norður Makedóníu í KA-heimilinu í kvöld, 34:23. Úrslitin réðust strax í fyrri hálfleik. Að honum loknum...
„Þetta var svekkjandi tap í leik sem var nánast í járnum allan tímann,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals, við handbolta.is í kvöld eftir að Valur tapaði með þriggja marka mun fyrir Dunajská Streda í fyrri viðureign liðanna í...
Þór vann ungmennalið Fram með fimm marka mun, 36:31, í þriðju umferð Grill66-deild karla í handknattleik í kvöld. Leikurinn fór fram á Dalvík vegna þess að Höllin á Akureyri er upptekin vegna árshátíðar. Ekki var annað að sjá en...
Haukar nældu í sín fyrstu stig í Olísdeild kvenna í handknattleik með sannfærandi sigri á Selfossi í mikilli markaveislu á Ásvöllum, 39:33. Staðan í hálfleik var 20:15 fyrir heimaliðið sem var með yfirhöndina lengst af í leiknum.
Nokkrar sveiflur voru...
Framundan eru tveir hörkuleikir sem hefjast klukkan 18. Annarsvegar viðureign Hauka og Aftureldingar í Olísdeild karla sem fram fer á Ásvöllum og hinsvegar fyrri viðureign Vals og HC DAC Dunajská í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik.
Handbolti.is ætlar...
Ekkert verður af leik Harðar og Selfoss sem fram átti að fara í Olísdeild karla í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði klukkan 16.
Eftir því sem handbolti.is hefur heyrt komst Selfossliðið ekki með flugi vestur í dag en síðast var...
Tveir leikir hefjast á Íslandsmótinu í handknattleik klukkan 16 í dag. Haukar og Selfoss mætast í Olísdeild kvenna og Þór Akureyri og ungmennalið Fram leika á Dalvík.
Til stóð að Hörður og Selfoss reyndu með sér í Olísdeild karla...