- Auglýsing -
Ekkert verður af leik Harðar og Selfoss sem fram átti að fara í Olísdeild karla í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði klukkan 16.
Eftir því sem handbolti.is hefur heyrt komst Selfossliðið ekki með flugi vestur í dag en síðast var flugi þangað frá Reykjavíkurflugvelli aflýst klukkan 15.30 samkvæmt upplýsingum á vef Isavia.
Rétt í þessu var mótanefnd HSÍ að tilkynna um frestun leiksins vegna ófærðar. Óvíst er hvenær reynt verður að koma leiknum á dagskrá en næsta víst er að hann fer ekki fram á morgun þar sem kolvitlaust veður er í aðsigi.
Því er fleygt að reynt verði að koma leiknum á dagskrá þriðjudaginn 18. október.
- Auglýsing -