Fyrstu fjórir leikirnir í fyrri umferð umspilsins fyrir heimsmeistaramótið í handknattleik kvenna fóru fram í dag. Þar bar e.t.v. hæst að Austurríki og Pólland skildu jöfn, 29:29, í smábænum Maria Enzersdorf í Austurríki.
Ungverjar kjöldrógu liðsmenn ítalska landsliðsins með 27...
Friðrik Hólm Jónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild ÍBV.
Friðrik hefur leikið með ÍBV frá blautu barnsbeini og er öflugur hornamaður sem hefur verið hluti af meistaraflokksliði ÍBV undanfarin ár og unnið með því fjölmarga titla....
Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir í samtali við handbolta.is að í ljósi umræðunnar síðasta sólarhring hafi HSÍ sent formönnum allra félaga í Olísdeildinni póst í dag þar sem þeir eru beðnir um að svara því afdráttarlaust, og sem...
„Við gerum okkur grein fyrir því að framundan er leikur við sterkan andstæðing, lið sem stendur okkur framar í dag,“ sagði Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðsins í handknattleik, í samtali við handbolta.is en á morgun mætir íslenska landsliðið Slóvenum í...
Það eru ekki aðeins leikmenn og þjálfarar í Olísdeild karla sem hafa athugasemdir við leikjaniðurröðum Íslandsmótsins. Elías Már Halldórsson, þjálfari HK, annars af toppliðum deildarinnar veltir fyrir sér af hverju beðið verður fram til 28. apríl með að hefja...
Handknattleiksdeild FH hefur ráðið þá Guðmund Pedersen, Magnús Sigmundsson og Jörgen Frey Ólafsson sem þjálfara meistaraflokks kvenna næstu tvö árin. Þetta kemur fram í tilkynningu deildarinnar í kvöld.
Jörgen Freyr mun jafnframt vera aðalþjálfari 3. flokks kvenna næstu tvö...
„Ég skil ekki alveg af hverju þetta er gert svona en við erum með fólk í hreyfingunni sem ákveður hlutina og við bara förum eftir því,“ sagði Sebastian Alexandersson, þjálfari karlaliðs Fram, þegar handbolti.is leitaði viðbragða hjá honum við...
Kari Aalvik Grimsbø var á dögunum afhent heiðursmerki norska handknattleikssambandsins fyrir framlag sitt til norsks handknattleiks. Grimsbø var árum saman einn fremsti markvörður heims. Frá 2005 til 2018 vann hún m.a. níu stórmót með norska landsliðinu. Grimsbø er hætt...
Ákveðið hefur verið að fresta keppni í Coca Cola-bikarnum í handknattleik karla og kvenna fram á haust, eftir því sem næst verður komist. Reyndar verður reynt ljúka 32-liða úrslitum í karlaflokki á þessari leiktíð. Einn leikur stendur út af...
Handknattleiksmaðurin Árni Bragi Eyjólfsson hefur samið við Aftureldingu til næstu þriggja ára frá og með næsta keppnistímabili.
Árni Bragi, sem er 26 ára gamall, lék um árabil með Aftureldingu og var í stóru hlutverki. Hann söðlaði um og gekk...
Fjórir íslenskir handknattleiksmenn voru í eldlínunni í kvöld í þýsku 1. deildinni í handknattleik þegar fimm leikir voru á dagskrá. Efstu liðin tvö, Flensburg og THW Kiel, unnu sína leiki og munar aðeins einu stigi á þeim eftir 22...
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður og leikmaður Hauka, segir ákvörðun HSÍ að hefja ekki keppni í Olísdeild karla aftur fyrr en 9. maí vera áfall fyrir leikmenn og að hún sé galin. Ekki hafi verið horft til sjónarmiða eða líðanar...
„Við berum virðingu fyrir rökum varnaraðila í þessu máli en erum hins vegar algjörlega sannfærð um að þegar horft er framhjá skammtímahagsmunum þessara tveggja liða sem tókust á um þetta mál þá hafi handboltinn sigrað í þessu máli,“ segir...
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, landsliðsmaður í handknattleik og liðsmaður franska liðsins PAUC-Aix, varð illa fyrir barðinu á kórónuveirunni en hann smitaðist fyrir nærri mánuði. Donni er ekkert byrjaður að æfa á ný með liðsfélögum sínum en vonast til að...
„Takk fyrir þetta Stjarnan og HSÍ. Þetta er og verður handboltaíþróttinni ekki til heilla. Málinu er ekki lokið og mun KA/Þór halda áfram að leita réttar síns,“ segir m.a. í yfirlýsingu frá KA/Þór vegna dóms Áfrýjunardómstóls HSÍ frá í...