Deildarmeistarar Selfoss luku keppni í Grill 66-deild kvenna með glæsibrag og stórsigri á FH, 42:21, í Kaplakrika í dag. Selfoss hafði mikla yfirburði í deildinni á leiktíðinni og vann allar sínar átján viðureignir örugglega. Þar með er leiktímabilinu lokið...
Valur vann nauman sigur á Steaua Búkarest, 36:35, í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik í Búkarest í dag. Síðari viðureign liðanna fer fram í N1-höll Valsara á Hlíðarenda á laugardaginn.
Leikmenn Vals voru með yfirhöndina...
Harðarmenn frá Ísafirði halda sig í humátt á eftir ÍR og Fjölni í toppbaráttu Grill 66-deildar karla. Þeir unnu ungmennalið Hauka í dag með 15 marka mun, 40:25, á Ásvöllum í Hafnarfirði í síðasta leik 17. og næst síðustu...
„Við vorum frábærir fyrstu tíu mínúturnar en hörmulega lélegir eftir það. Þetta var algjört afhroð jafnt í vörn sem sókn,“ sagði Andri Berg Haraldsson þjálfari Víkings í samtali við samfélagsmiðla KA eftir 15 marka tap fyrir KA í 19....
„Eftir upphafsmínúturnar leit út fyrir að að þetta gæti orðið basl í 60 mínútur en segja má að eftir að við núllstilltum okkur eftir um tíu mínútna leik þá vorum við ótrúlega flottir í 50 mínútur,“ sagði Halldór Stefán...
Jón Pétur Jónsson skoraði 13 mörk gegn rúmenska liðinu Dinamo Búkarest í Evrópukeppni meistaraliða 1978-1979.
Valsmenn fögnuðu þá jafntefli í Búkarest, 20:20, eftir að vera fjórum mörkum undir þegar 8 mínútur voru til leiksloka. Þeir gáfust ekki upp og...
Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting Lissabon undirstrikuðu yfirburði sína í portúgölsku 1. deildinni í gær þegar þeir unnu meistara síðasta árs, Porto, 35:32, á heimavelli. Sporting er deildarmeistari með fullu húsi stiga. Liðið vann allar 22 viðureignir...
Síðasta umferð Grill 66-deildar kvenna verður leikin í dag. Lið Selfoss hefur fyrir nokkru síðan tryggt sér deildarmeistaratitilinn og þar með sæti í Olísdeildinni á næstu leiktíð. Grótta, Víkingur og FH taka þátt í umspili Olísdeildar ásamt Aftureldingu.
Næst síðustu...
Valur mætir rúmenska liðinu Steaua í Búkarest í Rúmeníu í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum Evrópbikarkeppni karla í handknattleik. Flautað verður til leiks kl. 17. Leikurinn verður ekki sendur í sjónvarpi né verður honum streymt á netinu.
Íslensk...
Teitur Örn Einarsson er ennþá frá keppni vegna tognunar í nára og lék þar af leiðandi ekki með Flensburg í dag þegar liðið vann THW Kiel í grannaslag þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í dag, 33:26. Meiðslin urðu til...
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir BSV Sachsen Zwickau í kvöld þegar liðið vann afar mikilvægan sigur á Sport-Union Neckarsulm, 32:25, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. BSV Sachsen Zwickau komst upp úr mestu fallhættunni með...
Víkingar voru KA-mönnum engin fyrirstaða í KA-heimilinu í kvöld þegar liðin mættust í síðasta leik 19. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik. Þegar leikmenn Víkings komust loksins norður vegna ófærðar þá virtust þeir hafa fengið nóg eftir nokkurra mínútna leik....
KA/Þór er fallið úr Olísdeild kvenna eftir sex ára veru í deildinni. Hetjuleg barátta liðsins í lokaleiknum í kvöld gegn Fram nægði ekki til þess að krækja í a.m.k. eitt stig og halda þar með sæti í deildinni á...
Norska úrvalsdeildarliðið Storhamar, sem Axel Stefánsson þjálfari við annan mann, er komið í undanúrslit í Evrópudeild kvenna í handknattleik. Storhamar vann þýska liðið Thüringer, 33:26, í síðari viðureigninni í átta liða úrslitum. Leikið var í Hamar í Noregi.
Storhamar vann...
Guðmundur Þórður Guðmundsson og lærisveinar hans í danska úrvalsdeildarliðinu Fredericia HK unnu Nordsjælland, 31:26, á heimavelli í síðustu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. Fredericia HK hefur verið nær óstöðvandi og mætir væntanlega af fullum krafti í úrslitakeppnina sem hefst...