- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Dagskráin: Sjö viðureignir heima og að heiman

Sex leikir fara fram í þremur deildum Íslandsmótsins í handknattleik í kvöld. Fjórðu umferð Olísdeildar karla lýkur með þremur leikjum, m.a. Reykjavíkurslag í Origohöll Vals. Leikjakvöldið hefst með viðureign KA/Þórs og Stjörnunnar í KA-heimilinu klukkan 18. Liðin reka lestina...

Molakaffi: Arnór, Dagur, Harpa, Sigvaldi, Bjarki

Arnór Viðarsson og Dagur Arnarsson léku ekki með ÍBV gegn Gróttu í Olísdeild karla í handknattleik í gær. Arnór er tognaður á nára og Dagur meiddur á ökkla. Því miður hefur handbolti.is ekki upplýsingar um hversu lengi þeir félagar...

Þriðji sigurinn hjá Arnari Birki – Döhler fór á kostum

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fjögur mörk þegar nýliðar Amo Handboll unnu sinn þriðja leik í kvöld í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik á heimavelli, í Alstermo. Amo lagði HK Aranäs, 33:27, eftir að hafa verið átta mörkum yfir að loknum...
- Auglýsing -

HK-ingar fengu skell að Varmá – Brynjar Vignir átti stórleik

Aftureldingarmenn tuskuðu nýliða HK til í viðureign liðanna að Varmá í kvöld. Segja má að einstefna hafi verið í leiknum frá upphafi til enda. Aftureldingarmenn léku HK-inga grátt í fyrri hálfleik og voru með 13 marka forskot, 22:9, þegar...

Maksim tekur til óspillra málanna á Ásvöllum

Handknattleiksdeild Hauka tilkynnti í kvöld að Maksim Akbachev hafi verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og hefur hann þegar tekið til óspillra málanna. Maksim kemur í stað Vignis Svavarssonar sem látið hefur af störfum vegna anna á öðrum vettvangi. Vignir...

Elliði Snær með fimm í fimm marka sigri

Gummersbach vann annan leik sinn í röð í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld þegar liðið lagði HC Erlangen á heimavelli, 33:28. Eftir skrykkjótt gengi í fyrstu leikjunum er vonandi að Gummersbach-liðið sé að ná sér á strik....
- Auglýsing -

Ólafur Brim hefur samið við félagslið í Kúveit

Ólafur Brim Stefánsson leikmaður Gróttu er á leiðinni til Al Yarmouk í Kúveit. Arnar Daði Arnarsson, umsjónarmaður Handkastsins, sagði frá þessum fregnum á X í kvöld og hefur samkvæmt heimildum. Blaðamaður handbolti.is, sem staddur er á Seltjarnarnesi vegna leiks...

Handkastið: Liggur leið Maksims á Ásvelli?

Styrmir Sigurðsson einn umsjónarmanna hlaðvarpsþáttarins Handkastið segist hafa heimildir fyrir því að Haukar hafi Maksim Akbachev undir smásjá í leit sinni að aðstoðarþjálfara fyrir meistaraflokkslið félagsins. Styrmir sagði frá þessu í nýjasta þætti Handkastsins. „Ég hef heyrt það að Maksim...

Tel okkur eiga góða möguleika á að fara áfram

„Við erum að renna upp að Keflavíkurflugvelli. Eigum flug klukkan þrjú beint til Porto með áætlunarflugi Play. Við fljúgum síðan beint heim á sunnudaginn. Ferðalagið verður ekki betra,“ sagði Sigurður Bragason þjálfari bikarmeistara ÍBV þegar handbolti.is sló á þráðinn...
- Auglýsing -

Handkastið: Langaði meira að vera áfram úti

„Það var mikill áhugi hjá mér að fara þangað en eftir að hafa velt málum fyrir mér þá langaði mig meira að vera áfram úti sem atvinnumaður,“ segir Arnar Birkir Hálfdánsson stórskytta og leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Amo í hlaðvarpsþættinum...

Dagskráin: Þrír fyrstu leikir fjórðu umferðar

Fjórða umferð Olísdeild karla hefst í kvöld með þremur viðureignum. Aðrir þrír leikir fara fram annað kvöld og þar með verður endi bundinn á umferðina. Leikir kvöldsins - Olísdeild karla Hertzhöllin: Grótta - ÍBV, kl. 19.30.Varmá: Afturelding - HK, kl. 19.30.Kaplakriki:...

Molakaffi: Arnór, Óðinn, Axel, Stiven, Dunarea Braila, Skube og fleira

Arnór Atlason fagnaði sigri á heimavelli með liði sínu TTH Holstebro á liðsmönnum Kolding í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í gær, 38:29,  eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 18:13. Holstebro færðist upp í 10. sæti...
- Auglýsing -

Meistaradeild karla – fjórir leikir í tveimur riðlum

Fjórir leikir fóru fram í Meistaradeild karla í handknattleik í kvöld. Haukur Þrastarson var í leikmannhópi Kielce í fyrsta sinn á leiktíðinni í leik í Meistaradeildinni. Hann kom ekkert við sögu í leiknum. Magdeburg vann Celje, 39:23, á heimavelli...

Vil sjá að leikmenn láti aðeins finna fyrir sér

„Við vissum það svo sem fyrirfram að munurinn á liðunum væri mikill. Ekkert kom okkur á óvart í þeim efnum. Mér fannst við ekki gera nógu vel í fyrri hálfleik, ekki leika af þeim mætti sem við getum og...

Öruggur sigur á nýliðunum fyrir Rúmeníuför

Íslandsmeistarar Vals unnu öruggan sigur á nýliðum ÍR, 30:20, á heimavelli í kvöld í 4. umferð Olísdeildar kvenna. Valsliðið var með tögl og hagldir í leiknum frá upphafi til enda. Að loknum fyrri hálfleik var níu marka munur, 17:9....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -