- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Tumi Steinn í sigurliði – tap í fyrsta leik Hákons Daða

Tumi Steinn Rúnarsson fagnaði í kvöld með samherjum sínum í HSC 2000 Coburg fyrsta sigri liðsins í þýsku 2. deildinni í handknattleik á leiktíðinni. Coburg lagði lið hins forna veldis, TV Großwallstadt, 29:26, á heimavelli í annarri umferð deildarinnar....

Hefðum örugglega tapað fyrir tveimur árum

„Fyrir tveimur árum hefðum við örugglega tapað svona leik. Vissulega voru við nærri því að fá bara annað stigið en Róbert varði vítakastið. Það féll semsagt eitthvað með okkur, nokkuð sem ekki hefur mikið um á undanförnum árum,“ sagði...

Róbert Örn var hetja nýliðanna – tryggði sigurinn

Markvörðurinn Róbert Örn Karlsson var hetja nýliða HK í kvöld þegar hann tryggði liðinu bæði stigi gegn Haukum í Kórnum í kvöld. Hann varði vítakast frá Guðmundi Braga Ástþórssyni eftir að leiktíminn var úti. Vítakast sem Þráinn Orri Jónsson...
- Auglýsing -

Kapphlaupið til Búdapest er að hefjast

Meistardeild kvenna í handknattleik hefst á nýjan leik um helgina með látum þegar að 16 bestu kvennalið álfunnar mætast og hefja leið sína að Final4, úrslitahelginni í Búdapest. Þarna má finna lið sem eru komin aftur í deild þeirra...

Enginn í Evrópu skoraði fleiri mörk en Óðinn Þór

Óðinn Þór Ríkharðsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður svissneska meistaraliðsins Kadetten Schaffhausen, varð markahæsti handknattleikskarl Evrópu á síðasta keppninstímabil, 2022/2023, þegar litið er til meðaltalsfjölda í öllum leikjum sem hann tók þátt í. Þetta fullyrða reiknimeistarar datahandball sem m.a....

Myndir: Kynningarkvöld KA og KA/Þórs lukkaðist vel

Árlegt kynningarkvöld handknattleiksdeildar KA var haldið í KA-heimilinu á miðvikudaginn. Þangað komu þjálfarar og leikmenn karlaliðs KA og kvennaliðs KA/Þór ásamt stuðningsmönnum. Þjálfarar liðanna fór yfir tímabilið sem framundan eru en báðir tóku við liðum sínum í sumar. Arna...
- Auglýsing -

A-landslið kvenna: Fylgdu stelpunum okkar til Færeyja

Fréttatilkynning frá HSÍ. Stelpurnar okkar leika gegn Færeyjum í Þórshöfn í undankeppni EM 2024 15. október nk. HSÍ hefur í samstarfi við Icelandair ákveðið að bjóða stuðningsmönnum liðsins að fylgja liðinu til Færeyja. Leiguvél Icelandair flýgur frá Reykjavíkurflugvelli 14. okt....

Myndskeið: Aron fékk frábærar móttökur í Krikanum

Aron Pálmarsson fékk frábærar móttökur þegar hann var kynntur síðastur en ekki sístur til leiks í Kaplakrika í gær áður en viðureign FH og Aftureldingar í Olísdeild karla hófst. Aron var að taka þátt í sínum fyrsta leik fyrir...

Guðjóni þökkuð 50 ár við dómgæslu og eftirlit

Guðjón Leifur Sigurðsson lauk í vor 50. keppnistímabili sínu sem dómari og síðar eftirlitsmaður í handknattleik. Af því tilefni var Guðjóni afhentur þakklætisvottur frá Handknattleikssambandi Íslands þegar hann hóf 51. tímabilið í hlutverki eftirlitsmanns á viðureign FH og Aftureldingar...
- Auglýsing -

Dagskráin: Öllu verður tjaldað til í Kórnum

Keppni í Olísdeild karla hófst í gærkvöld með þremur hörkuleikjum og hátíðarstemningu. Þráðurinn verður tekinn upp í kvöld þegar Haukar sækja nýliða HK heim í Kórinn. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. HK-ingar leggja mikið í umgjörð leiksins enda ríkir...

Flensburg vann grannaslaginn – Melsungen er efst

Teitur Örn Einarsson og samherjar hans í Flensburg unnu meistara THW Kiel í viðureign stórliðanna í norður Þýskalandi í gær, 28:27. Leikurinn var liður í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Daninn Emil Jakobsen skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins...

Molakaffi: Aldís, Jóhanna, Katrín, Berta, Hákon, Hjörvar, Dissinger

Aldís Ásta Heimisdóttir mætti til leiks á ný með sænska úrvalsdeildarliðinu Skara HF í gær eftir að hafa misst af bikarleik um síðustu helgi vegna meiðsla. Hún skoraði þrjú mörk, þar af eitt úr vítkasti, þegar Skara vann VästeråsIrstad...
- Auglýsing -

Má ekki gerast aftur

„Annan leikinn í röð grófum við okkur holu í fyrri hálfleik. Við verðum að skoða hvernig á því stendur. Við verðum að lofa okkur að það gerist ekki aftur,“ sagði Árni Bragi Eyjólfsson næst markahæsti leikmaður Aftureldingar gegn FH...

Þetta er eitthvað sem við viljum

„Við verðum að venjast því að það verður umtal, pressa og væntingar til okkar. Það er líka eitthvað sem við viljum,“ sagði Sigursteinn Arndal þjálfari FH ánægður með sína menn eftir sigur á Aftureldingu, 30:28, í fyrsta leik liðsins...

Fram vann í hörkuleik – Níu marka munur hjá grannliðunum – úrslit kvöldsins

Fram tryggði sér tvö mikilvæg stig í upphafsleik sínum í Olísdeild karla í handknattleik í Úlfarsárdal í kvöld þegar Gróttumenn komu í heimsókn, 26:25. Auk nokkurra breytinga á Framliðinu í sumar þá eru nokkrir leikmenn fjarverandi vegna meiðsla. Talsvert...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -