Keppni í Olísdeild karla hófst í gærkvöld með þremur hörkuleikjum og hátíðarstemningu. Þráðurinn verður tekinn upp í kvöld þegar Haukar sækja nýliða HK heim í Kórinn. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
HK-ingar leggja mikið í umgjörð leiksins enda ríkir mikil eftirvænting innan félagsins yfir að vera með lið í Olísdeildinni á nýjan leik. Öllu verður tjaldað til í Kórnum í kvöld. Frítt verður inn á leikinn en á móti kemur að fólki stendur til boða að sleppa eldamennskunni og kaupa kvöldverð á staðnum. HK-ingar verða með til sölu glóandi heita hamborgar, svaladrykki og vitanlega kaffisopa.
Olísdeild karla – leikur kvöldsins.
Kórinn: HK – Haukar klukkan 19.30.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Allar helstu upplýsingar um útsendingar frá leiknum í gegnum dreifikerfi Símans er að finna í fréttinni hér fyrir neðan.