- Auglýsing -
- Auglýsing -

A-landslið kvenna: Fylgdu stelpunum okkar til Færeyja

Kvennalandsliðið leikur við landsliðs Lúxemborgar í kvöld. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Fréttatilkynning frá HSÍ.

Stelpurnar okkar leika gegn Færeyjum í Þórshöfn í undankeppni EM 2024 15. október nk. HSÍ hefur í samstarfi við Icelandair ákveðið að bjóða stuðningsmönnum liðsins að fylgja liðinu til Færeyja. Leiguvél Icelandair flýgur frá Reykjavíkurflugvelli 14. okt. kl. 09:00 og til baka frá Færeyjum kl. 21:00 15. okt., áætluð lending í Reykjavík verður 21:50.


Stuðningur við stelpurnar hefur verið frábær á heimavelli liðsins síðustu ár og gefst stuðningsmönnum tækifæri á að fylgja liðinu til Færeyja. Verðið fyrir flugið er 65.000 kr og innifalið er flug til Færeyja og flugvallarskattar, 40 sæti verða í boði fyrir stuðningsmenn Íslands í vélinni!

Frekari upplýsingar veitir Kjartan Vídó, markaðsstjóri HSÍ í gegnum netfangið kjartanv@hsi.is

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -