Handknattleiksmaðurinn úr Haukum, Darri Aronsson, er byrjaður að æfa af fullum krafti með franska efstu deildarliðinu US Ivry. Vonir standa til þess að hann leiki sinn fyrsta leik í næstu viku, gangi áfram allt að óskum.
Darri gekk til liðs...
Stiven Tobar Valencia hornamaður úr Vals er nýliði í íslenska landsliðinu í handknattleik sem valið hefur verið fyrir tvo leiki við Tékka í undankeppni EM 2024 sem fram fara 8. og 12. mars.
Stiven hefur farið á kostum með...
Jónatan Þór Magnússon þjálfari karlaliðs KA í handknattleik var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ á þriðjudaginn en úrskurðurinn var birtur í gær. Jónatan Þór má þar af leiðandi ekki stýra KA-liðinu gegn Selfoss í KA-heimilinu...
Betur fór en áhorfðist hjá Robertu Stropé handknattleikskonunni öflugu hjá Selfossi. Óttast var að hún hefði slitið krossband í hné snemma í síðari hálfleik í viðureign Selfoss og Vals í Olísdeild kvenna á 13. febrúar. Eyþór Lárusson þjálfari Selfossliðsins...
Stórleikur landsliðsmarkvarðarins Elínar Jónu Þorsteinsdóttur í marki Ringkøbing Håndbold dugði ekki til sigurs á København Håndbold á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Elín Jóna varði 19 skot, 42%, í 28:25 tapi. Ringkøbing er í 11. sæti af 14...
Þau tíðindi áttu sér stað í gærkvöld að Þorgeir Haraldsson áhrifamesti og farsælasti forystumaður í íslenskum handknattleik til áratuga lét af embætti formanns handknattleiksdeildar Hauka á aðalfundi sem vitanlega var haldinn á Ásvöllum.
Fáir ef nokkrir stjórnendur handknattleikdeildar á...
Fimm íslenskir handknattleiksmenn voru í eldlínunni með félagsliðum sínum í leikjum þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í kvöld.
Oddur Gretarsson skoraði 11 mörk úr 13 skotum í stórsigri Balingen-Weilstetten á liðsmönnum Hüttenberg, 35:20, á heimavelli. Þrjú markanna skoraði Oddur úr...
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Meðan Handknattleikssamband Íslands leitar að einstaklingi í starf þjálfara karlalandsliðs Íslands þá tilkynnti handknattleikssamband Sviss í kvöld að landsliðsmaðurinn Andy Schmid taki við þjálfun karlalandsliðs Sviss sumarið 2024. Hann á að...
Þýsalandsmeistarar Magdeburg treysti stöðu sína í öðru sæti A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í kvöld með öruggum sigri á PPD Zagreb, 31:26, í höfuðborg Króatíu í kvöld. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú af mörkum Magdeburg og gaf 10 stoðsendingar....
Það voru nokkuð óvæntar fréttir sem bárust úr herbúðum Handknattleikssambands Íslands í Laugardal síðdegis, þriðjudaginn 21. febrúar 2023; Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands var hættur eftir fimm ára starf, en áður hafði hann verið landsliðsþjálfari 2001-2004 og 2008-2012, en...
Í hádeginu í dag var dregið til undanúrslita í Poweradebikarkeppni karla og kvenna í 3. og 4. aldursflokki. Undanúrslitaleikirnir fara fram á næstunni en úrslitaleikir flokkanna fara fram í Laugardalshöll föstudaginn 17. mars í 3. flokki og sunnudaginn 19....
Valur innsiglaði sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik karla í gærkvöld með stórsigri á PAUC, 40:31, í Origohöllinni. Ekki er hægt að útiloka að Valur hafni í fjórða sæti og enn er möguleiki á öðru sæti.
Til þess...
Bikarmeistarar Vals mæta Haukum í undanúrslitum Poweradebikars kvenna í handknattleik miðvikudaginn 15. mars í Laugardalshöll. Dregið var í hádeginu í dag. Í hinni viðureign undanúrslitanna eigast við ÍBV og Selfoss.
Leikið verður til undanúrslita og úrslita í Laugardalshöll í fyrsta...
Dregið verður í undanúrslit Poweradebikarkeppni karla og kvenna (bikarkeppni HSÍ) í Minigarðum klukkan 12 í dag.
Handbolti.is er í Minigarðinum og fylgist grannt með hvaða lið dragast saman í textalýsingu hér fyrir neðan. Undanúrslitaleikirnir fara fram í Laugardalshöllinni 15....
Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður svissneska meistaraliðsins Kadetten Schaffhausen skoraði ótrúlegt mark fyrir lið sitt í sigurleik á portúgalska liðinu Benfica í gær í viðureign liðanna í A-riðli Evrópudeildarinnar í handknattleik í Lissabon.
Whaat 👀@RasmusBoysen92 Great goal...