- Auglýsing -
- Auglýsing -

Stiven kallaður inn í hópinn sem mætir Tékkum

Stiven Tobar Valencia hefur svo sannarlega slegið í gegn í vetur. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Stiven Tobar Valencia hornamaður úr Vals er nýliði í íslenska landsliðinu í handknattleik sem valið hefur verið fyrir tvo leiki við Tékka í undankeppni EM 2024 sem fram fara 8. og 12. mars.

Stiven hefur farið á kostum með Val á keppnistímabilinu.


Ómar Ingi Magnússon og Kristján Örn Kristjánsson, Donni, eru fjarverandi og eiga Viggó Kristjánsson og Teitur Örn Einarsson að leika í hægri skyttustöðunni í þeirra stað. Annars er hópurinn skipaður leikmönnum sem léku fyrir Íslands hönd á HM í Svíþjóð í síðasta mánuði.


Ágúst Þór Jóhannsson og Gunnar Magnússon, starfandi landsliðsþjálfarar í handknattleik karla hafa valið sinn fyrsta keppnishóp eftir að þeir tóku tímabundið við eftir að Guðmundur Þórður Guðmundsson hætti í byrjun vikunnar.


Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val (252/21).
Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (43/1).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (79/80).
Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (164/634).
Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (99/340).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (31/51).
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (15/19).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (60/146).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (47/103).
Janus Daði Smárason, Kolstad Håndball (66/103).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (24/81).
Sigvaldi Björn Guðjónsson Kolstad Håndball (57/156).
Stiven Tobar Valencia, Val (0/0).
Teitur Örn Einarsson, SG Flensburg-Handewitt (31/30).
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig (41/97).
Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Neckar Löwen (72/35).

Uppfært 6. mars:
Arnór Snær Óskarsson, Val (0/0).


Fyrri viðureignin verður í Brno í Tékklandi miðvikudaginn 8. mars og hefst kl. 19:15. Síðari leikurinn fer fram í Laugardalshöll sunnudaginn 12. mars kl. 16. Verður það fyrsti handboltalandsleikurinn í Laugardalshöll síðan í byrjun nóvember 2020.


Miðasala fyrir heimaleikinn hefst á morgun kl. 12 á tix.is.

Staðan í riðlinum:

Ísland220073:464
Tékkland220060:424
Eistland200248:680
Ísrael200240:650
Leikir:
8. mars: Tékkland - Ísland.
9. mars: Eistland - Ísrael.
12. mars: Ísrael - Eistland.
12. mars: Ísland - Tékkland.
27. apríl: Ísrael - Ísland.
27. apríl: Eistland - Tékkland.
30. apríl: Ísland - Eistland.
30. apríl: Tékkland - Ísrael.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -