- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Molakaffi: Heiðmar, Arnór, Viktor, Óskar, Örn, Aðalsteinn, Ólafur, Guðmundur, Einar, Sveinn

Hannover-Burgdorf komst í gær í 16-liða úrslit í þýsku bikarkeppninnar í handknattleik. Liðið vann Stuttgart, 26:20, á heimavelli. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.  Arnór Þór Gunnarsson er kominn í 16-liða úrslit þýsku bikarkeppninnar í handknattleik með liði sínu, Bergischer HC....

Döhler tryggði FH bæði stigin í grannaslag

Phil Döhler, markvörður, sá til þess að FH fór með bæði stigin í viðureign sinni við granna sína í Haukum í Kaplakrika í kvöld. Þjóðverjinn hafði verið daufur í markinu í síðari hálfleik en reis upp þegar mest á...

Ómar Ingi og Gísli eru komnir í undanúrslit

Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt þegar SC Magdeburg vann sádi arbíska liðið Khaleej, 35:29, í riðlakeppni heimsmeistaramóts félagsliða í handknattleik í Dammam í Sádi Arabíu í dag. Þar með komust meistarar síðasta árs...
- Auglýsing -

Ekki verður dregið lengur að draga

Dregið verður í fyrstu umferð í karlaflokki í bikarkeppni HSÍ klukkan 11 á morgun á skrifstofu HSÍ. Þrjár viðureignir standa fyrir dyrum í fyrstu umferð en 19 lið eru skráð til keppni. Þau eru: Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta,...

Sló í bakseglið hjá Darra – hittir lækni eftir helgi

Því miður sló í bakseglið hjá handknattleiksmanninum Darra Aronssyni á dögunum svo óvíst er hversu lengi hann verður frá keppni til viðbótar. Darri ristarbrotnaði um miðjan júlí rétt áður en hann fór til franska liðsins US Ivry og hefur...

Þreifa sig áfram með þrjá dómara

Sex árum eftir að Handknattleikssamband Evrópu velti vöngum yfir að bæta við þriðja dómaranum inn á handknattleiksvöllinn mátar Alþjóða handknattleikssambandið sig við þriggja dómara kerfi á heimsmeistaramóti félagsliða í karlaflokki sem stendur yfir í Dammam í Sádi Arabíu. Verði góð...
- Auglýsing -

Stórskytta Gróttu úr leik næstu vikurnar

Stórskyttan Birgir Steinn Jónsson leikur ekki með Gróttu næstu vikurnar eftir að hafa handarbrotnað á æfingu liðsins í byrjun vikunnar. Vísir segir frá meiðslum Birgis Steins í morgun. Birgir Steinn verður í gifsi næstu þrjár til fjórar vikur af...

Haukur og samherjar í undanúrslit í Dammam

Pólska meistaraliðið Łomża Industria Kielce tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts félagsliða í handknattleik karla með níu marka sigri á brasilíska liðinu Handebol Taubaté, 39:30, í annarri umferð keppninnar í Dammam í Sádi Arabíu. Haukur skoraði eitt mark...

Dagskráin: Hafnarfjarðarslagur í Kaplakrika

Sjötta umferð Olísdeildar karla hefst í kvöld með stórleik í Kaplakrika þegar Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar leiða saman garpa sína. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Hvorugt liðið hefur náð sér almennilega á flug til þessa á leiktíðinni. Það breytir...
- Auglýsing -

Molakaffi: Tryggvi, Bjarni, Ásgeir, Egill Már, Victor Máni, Roland, Appelgren

Tryggvi Þórisson skoraði ekki fyrir IK Sävehof þegar liðið vann Hammarby, 27:25, á heimavell í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. IK Sävehof er í sjötta sæti með sex stig eftir fimm leiki, á inni leik við Gautaborgarliðið Önnereds sem einnig...

Akureyringarnir flugu í átta liða úrslit

Akureyringarnir, Aldís Ásta Heimisdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir, léku með Skara HF í kvöld þegar liðið komst glæsilega í átta liða úrslit sænsku bikarkeppninnar eftir sex marka sigur á Kungälvs HK, 35:29, á heimavelli. Um var að ræða síðari...

Teitur Örn og fleiri komust áfram – úrslit og markaskor

Teitur Örn Einarsson og samherjar í Flensburg komust í kvöld í 16-liða úrslit þýsku bikarkeppninnar eftir sigur á Füchse Berlin, 34:32, í Flens-Arena í hörkuleik. Teitur Örn skoraði þrjú mörk í leiknum. Af öðrum liðum íslenskra handknattleiksmanna er það að...
- Auglýsing -

Valur sterkari í Eyjum og fór upp að hlið Stjörnunnar

Valur fór upp að hlið Stjörnunnar í efsta sæti Olísdeildar kvenna með öruggum sigri á ÍBV, 31:26, í Olísdeild kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld. Um lokaleik 4. umferðar var að ræða. Valur hefur átta stig eins og...

Fjögur af fimm komust í átta liða úrslit í Noregi

Fjögur svokölluð Íslendingalið komust í dag í átta liða úrslit norsku bikarkeppninnar í handknattleik. Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur hjá Elverum með sex mörk þegar liðið vann stórsigur á Sandnes, 40:22. Sigvaldi Björn Guðjónsson var einnig markahæstur í öruggum sigri...

Haukur og félagar unnu stórsigur í Dammam

Haukur Þrastarson og félagar í pólska mestaraliðinu Łomża Industria Kielce unnu stórsigur á Al-Kuwait, 47:26, í fyrstu umferð heimsmeistaramóts félagsliða í Dammam í Sádi Arabíu í morgun. Kielce var níu mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 23:14. Haukur lék talsvert...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -