- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Úrslitastund stendur fyrir dyrum

Um helgina er komið að úrslitastund í útsláttarkeppni Meistaradeildar kvenna í handknatleik þegar kemur í ljós hvaða þrjú lið fara áfram í 8-liða úrslit.  Ungverska liðið FTC þarf að eiga toppleik til að snúa við sjö marka tapi fyrir...

Molakaffi: Bjarni Ófeigur, Grétar Ari, Ágúst Elí, Boqust, Bombac, Nilsson

Bjarni Ófeigur Valdimarsson og samherjar í IFK Skvöde standa vel að vígi eftir annan sigur á Hammarby í átta liða úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Leikið var í Stokkhólmi. Lokatölur voru, 30:24, fyrir Skövde sem hefur tvo...

Berserkir stóðust ÍR-ingum ekki snúning

ÍR-ingar komust aftur í efsta sæti Grill66-deildar karla í handknattleik með stórsigri á Berserkjum, 36:22, í upphafsleik næst síðustu umferðar í Austurbergi í kvöld. ÍR-liðið lét neðsta lið deildarinnar ekki vefjast fyrir sér að þessu sinni enda er hvert...
- Auglýsing -

Tvö efstu liðin halda sínu striki – Grótta eygir von um sæti í úrslitakeppninni

Efstu tvö lið Olísdeildar karla héldu sínu striki í kvöld. Haukar unnu KA, 27:24, á Ásvöllum og Valur vann stórsigur á Aftureldingu, 26:18. KA-menn veittu Haukum harða keppni að þessu sinni en máttu játa sig sigraða á síðustu tíu...

Leikjavakt: Hver er staðan?

Fjórir leikir hefjast í 20. umferð Olísdeildar karla í handknattleik klukkan 19.30. Grótta - Víkingur.Haukar - KA.Stjarnan - HK.Afturelding - Valur. Fylgst er með leikjunum í textauppfærslu hér fyrir neðan.

Halldór Stefán heldur áfram að skrifa söguna hjá Volda

Handknattleiksþjálfarinn Halldór Stefán Haraldsson hefur skrifað undir nýjan samning við norska 1. deildarliðið Volda. Félagið greinir frá tíðindunum í dag. Halldór Stefán er að ljúka sínu sjötta ári sem þjálfari kvennaliðs Volda og ljóst að mikil ánægja er með...
- Auglýsing -

Aðeins eitt mark skilur að tvo efstu menn

Hörð barátta er um markakóngsnafnbótina í Grill66-deild karla í handknattleik þegar tvær umferðir eru eftir hjá flestum leikmönnum deildarinnar. Fjórir leikmenn hafa skorað yfir 100 mörk hver á leiktíðinni. ÍR-ingurinn Dagur Sverrir Kristjánsson er markahæstur með 107 mörk í...

Íslenska landsliðið er eitt af þeim allra bestu

„Framundan eru tveir erfiðir leikir þar sem við eru fyrirfram veikara liðið,“ segir Ales Pajovic, landsliðsþjálfari Austurríkis í handknattleik í samtali á heimasíðu austurríska handknattleikssambandsins. Þar er fjallað um val Pajovic á 17 leikmönnum sem hann teflir fram gegn...

Húsasmiðjan slæst í hóp styrktaraðila handknattleiksdeildar KA

Fréttatilkynning: Húsasmiðjan mun styrkja handknattleiksdeild KA til næstu þriggja ára.Með samstarfinu mun Húsasmiðjan verða sýnileg með merkingum á gólfi á heimleikjum KA. Haddur J. Stefánsson, formaður handknattleiksdeildar KA: „Stuðningur fyrirtækja skiptir íþróttahreyfinguna gríðarlegu máli. Við bjóðum Húsasmiðjuna velkomna í hóp styrktaraðila...
- Auglýsing -

Dagskráin: Endasprettur stendur fyrir dyrum

Fjórir leikir fara fram í tuttugustu, og þriðju síðustu, umferð Olísdeildar karla handknattleik í kvöld. Tvö efstu lið deildarinnar, Haukar og Valur, verða í eldlínunni. Haukar taka á móti KA-mönnum á Ásvöllum. Valsmenn sækja Aftureldingu heim á Varmá. Einnig getur...

Molakaffi: Dagur, Þórir, Bjarni Kristinn, Halldóra, Satchwell, Ólafur, Aðalsteinn

Dagur Arnarsson lék sinn 250. leik fyrir meistaraflokk ÍBV í sigurleiknum á FH í Olísdeild karla í handknattleik á miðvikudagskvöld í Kaplakrika. Dagur er aðeins 24 ára gamall en hefur verið fastamaður í meistaraflokksliði ÍBV um árabil, var m.a....

Tók fram skóna og leikur til úrslita

Hörður Fannar Sigþórsson tók handboltaskóna ofan af hillunni á dögunum ekki til einskis. Hann mun leika til úrslita um færeyska meistaratitilinn í handknattleik karla með samherjum sínum í KÍF frá Kollafirði. Þetta liggur fyrir eftir að KÍF vann meistaralið...
- Auglýsing -

Kærkominn sigur í lífróðri

Lífróður Stuttgart fyrir áframhaldandi veru í þýsku 1. deildinni í handknattleik gekk ágætlega í kvöld. Liðið, sem Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson leika með, vann Erlangen, 34:29, á heimavelli. Stuttgart er eftir sem áður í 15. sæti...

Fyrsti leikur Íslands verður á heimavelli

Þegar liggur fyrir að fyrsti leikur íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM 2024 verður á heimavelli gegn Ísrael 12. eða 13. október á þessu ári. Nokkrum dögum síðar verður leikið við landslið Eistlands á útivelli. Dregið var í riðla fyrr í...

Tékkar, Eistlendingar og Ísraelsmenn eru andstæðingar Íslands

Íslenska landsliðið er í þriðja riðli í undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik en dregið var í dag í Berlín. Með íslenska landsliðinu í riðli verða landslið Tékklands, Ísraels og Eistlands. Íslenska landsliðið var líka með Ísrael í riðli í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -