„Framundan eru tveir erfiðir leikir þar sem við eru fyrirfram veikara liðið,“ segir Ales Pajovic, landsliðsþjálfari Austurríkis í handknattleik í samtali á heimasíðu austurríska handknattleikssambandsins. Þar er fjallað um val Pajovic á 17 leikmönnum sem hann teflir fram gegn...
Þegar liggur fyrir að fyrsti leikur íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM 2024 verður á heimavelli gegn Ísrael 12. eða 13. október á þessu ári. Nokkrum dögum síðar verður leikið við landslið Eistlands á útivelli.
Dregið var í riðla fyrr í...
Íslenska landsliðið er í þriðja riðli í undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik en dregið var í dag í Berlín. Með íslenska landsliðinu í riðli verða landslið Tékklands, Ísraels og Eistlands. Íslenska landsliðið var líka með Ísrael í riðli í...
Dregið er í riðla í undankeppni Evrópumótsins karla í handknattleik í Berlín í dag. Dregið verður í átta fjögurra liða riðla undankeppninnar sem hefst í október. Ísland er í fyrsta styrkleikaflokki af fjórum.
Handbolti.is fylgist með drættinum í textalýsingu hér...
Klukkan 12 á hádegi í dag hófst miðasala á landsleik Íslands og Austurríki í undankeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik sem fram fer á Ásvöllum í Hafnarfirði laugardaginn 16. apríl klukkan 16.
Miðasala fer eingöngu fram á Tix.is - smellið hér....
Í dag verður dregið í riðla fyrir undankeppni Evrópumótsins í handknattleik karla sem fram fer í Þýskalandi frá 10. til 28. janúar. Dregið verður í átta fjögurra liða riðla við hátíðlega athöfn í Berlín. Athöfnin hefst klukkan 16....
Gríðarleg eftirvænting ríkir fyrir viðureignum Íslands og Austurríkis í undankeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik sem fram fara 13. og 16. apríl.
Miðasala fyrir síðari leikinn sem fram fer á Ásvöllum í Hafnarfirði 16. apríl hefst á næsta fimmtudag kl....
„Hakan féll ekki niður í gólf við tíðindin. Þótt ég hafi vona það besta þá var ég búinn undir það versta,“ sagði Þráinn Orri Jónsson, leikmaður Hauka í samtali við handbolta.is fyrir hádegið. Þráinn Orri leikur ekki handknattleik á...
Tomas Axnér, landsliðsþjálfari Svía í handknattleik kvenna, valdi í morgun 17 leikmenn til að tefla fram gegn Íslendingum og Tyrkjum í síðustu tveimur leikjum sænska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik kvenna 20. og 23. apríl. Leikurinn 20. apríl...
Bókað hefur verið í helming þátttökusæta á heimsmeistaramóti karla sem fram fer í Póllandi og í Svíþjóð í janúar á næsta ári. Eftir standa átta sæti Evrópu en að kvöldi 17. apríl liggur fyrir hvaða þjóðir hreppa sætin.
Til viðbótar...
Íslenska landsliðið í handknattleik karla verður í fyrsta styrkleikaflokki af fjórum þegar dregið verður í átta fjögurra liða riðla í fyrir undankeppni Evrópumótsins í Berlín fimmtudaginn 31. mars. Handknattleikssamband Evrópu gaf út styrkleikaflokkana fjóra í dag.
Evrópumótið verður í...
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur staðfest leiktímana á viðureignum Íslands og Austurríkis í umspili um sæti á heimsmeistaramóti karla í handknattleik í næsta mánuði. Fyrri viðureignin verður í Bregenz miðvikudaginn 13. apríl. Flautað verður til leiks klukkan 18 að staðartíma....
Íslenska landsliðið mætir austurríska landsliðinu í tveimur umspilsleikjum í næsta mánuði þar sem í húfi verður þátttökuréttur á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla sem fram fer í janúar á næsta ári. Austurríki lagði Eistland, 27:24, í Tallin í kvöld og...
Landslið Danmerkur, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, svaraði í dag fyrir tapið fyrir íslenska landsliðinu í gærkvöld þegar liðin mættust á Ásvöllum. Danir voru mikið beittari í síðari hálfleik í dag og skoruðu 18 mörk og alls 32...
Landslið Íslands og Danmerkur í karlaflokki, skipuð leikmönnum 20 ára og yngri mætast öðru sinni í vináttulandsleik í handknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 16.
Íslenska liðið vann fyrri viðureignina, sem fram fór á Ásvöllum í gær, 28:22, eftir að...