- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Gengur á ýmsu í Noregi

Storhamar, liðið sem Axel Stefánsson, þjálfar heldur sigurgöngu sinni áfram í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna. Í dag lagði Storhamar liðsmenn Byåsen örugglega á heimavelli með sex marka mun, 31:24, eftir að hafa verið yfir, 18:11, að loknum fyrri...

Eru Stuttgart og Melsungen að rétta úr kútnum?

Eftir dauflega byrjun í þýsku 1. deildinni á leiktíðinni þá ráku leikmenn Stuttgart af sér slyðruorðið í dag og lögðu Rhein-Neckar Löwen á heimavelli, 35:30. Þar með er fyrsti sigur liðsins í höfn eftir tap í fjórum fyrstu leikjum...

Molakaffi: Elín, Viktor, Sveinn, Sandra, Aðalsteinn, Harpa, Díana, Andrea

Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 10 skot sem gerði 31% hlutfallsmarkvörslu, þegar lið hennar Ringköbing Håndbold vann Holstebro, 30:23, í dönsku úrvalsdeldinni í handknattleik í gær. Sigurinn var afar kærkominn því nýliðar Ringköbing leggja mikla áherslu á að vinna þau...
- Auglýsing -

Rivera jafnaði metin og náði stigi gegn Donna og félögum

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og samherjar hans í franska 1. deildarliðinu PAUC, gerðu jafntefli við Nantes á heimavelli í kvöld, 27:27. PAUC og Nantes eru jöfn að stigum í fimmta til sjötta sæti deildarinnar með fimm stig hvort að...

Hver Íslendingurinn var öðrum betri

Hver Íslendingurinn var öðrum betri í leikjum með félögum sínum í þýsku 2. deildinni í handknattleik í dag þegar lið þeirra allra unnu leiki sína. Hákon Daði Styrmisson skoraði 10 mörk í 10 skotum, þar af voru tvö mörk...

Molakaffi: Ágúst Elí, Steinunn, Hannes, Elvar, Birna, Sando

Ágúst Elí Björgvinsson, landsliðsmarkvörður, varði fjögur skot, þar af eitt vítakast, á þeim skamma tíma sem hann stóð í marki KIF Kolding undir lok leiksins við Skive í dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Þar á meðal varði Ágúst Elí síðasta...
- Auglýsing -

Teitur hafði betur gegn Bjarna

Teitur Örn Einarsson og félagar í IFK Kristianstad höfðu betur í viðureign sinn við IFK Skövde í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld, 26:24. Leikið var í Kristianstad. Með sigrinum færðist Kristianstad upp í sjöunda sæti deildarinnar. Liðið hefur...

Myndskeið: Ekkert lát er á sigurgöngu

SC Magdeburg, sem Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leika með, heldur sigurgöngu sinni áfram í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Í gærkvöld vann Magdeburg sinn sjötta leik þegar það vann lánlaust lið MT Melsungen, 27:24, á heimavelli...

Molakaffi: Ólafur Andrés, Obradovic og bláháfarnir, Sando, höggormar herja

Ólafur Andrés Guðmundsson gat ekki leikið með samherjum sínum í Montpellier þegar liðið vann þýsku meistarana í THW Kiel, 37:30, í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í gær. Leikið var í Frakklandi. Ólafur Andrés er lítillega tognaður í læri....
- Auglýsing -

Íslendingar verða andstæðingar í Evrópudeildinni

Dregið var í morgun í riðla  í Evrópudeildinni í handknattleik karla. Alls voru nöfn 24 liða í skálunum og voru þau dregin í fjóra sex liða riðla. Keppni í deildinni hefst 19. október og stendur yfir fram í mars...

Molakaffi: Andrea, Örn, Magnús, Axel, Elías, Sara, Birta, Daníel, Aron

Andrea Jacobsen skoraði fimm mörk fyrir Kristianstad þegar liðið vann Lugi, 37:23, í fyrri viðureign liðanna í sænsku bikarkeppninni í gærkvöld. Síðari viðureignin verður í Lundi á laugardaginn. Örn Vésteinsson Östenberg skoraði fimm mörk fyrir Tønsberg Nøtterøy í norsku úrvalsdeildinni...

Bið Zagreb eftir stigi er lokið

Orri Freyr Þorkelsson kom lítið við sögu í kvöld þegar lið hans Elverum krækti í eitt stig í heimsókn sinni til HC PPD Zagreb í höfuðborg Króatíu, 27:27. Zagreb-liðið var þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:11. Þetta...
- Auglýsing -

Mark Hauks skipti sköpum – firn urðu í Veszprém

Íslendingarnir Haukur Þrastarson og Sigvaldi Björn Guðjónsson fögnuðu sigri með samherjum sínum í Vive Kielce í kvöld er þeir sóttu Motor Zaporozhye heim í þriðju umferð Meistaradeildar karla í handknattleik, 26:25, í hörkuleik í Zaporozhye í Úkraínu. Roland Eradze...

Nöfn fimm Íslendingaliða verður að finna í skálunum

Íslenskir handknattleiksmenn koma við sögu hjá fimm af 24 liðum sem taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildar karla í vetur. SC Magdeburg, TBV Lemgo, PAUC Handball, GOG Håndbold og Kadetten Schaffhausen. Eftir að undankeppninni lauk í gærkvöld liggja fyrir heiti þeirra...

Donni og Viktor Gísli komnir í riðlakeppnina

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og samherjar í franska liðinu PAUC-Aix komust í kvöld riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Þeir unnu stórsigur á ÖIF Arendal frá Noregi, 40:22, í síðari leik liðanna í Frakklandi. Jafntefli varð í fyrri viðureigninni, 27:27. Donni var markahæstur hjá...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -