- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Andrea, Örn, Magnús, Axel, Elías, Sara, Birta, Daníel, Aron

Andrea Jacobsen handknattleikskona hjá Kristianstad í Svíþjóð. Mynd/Kristianstad Handboll
- Auglýsing -
  • Andrea Jacobsen skoraði fimm mörk fyrir Kristianstad þegar liðið vann Lugi, 37:23, í fyrri viðureign liðanna í sænsku bikarkeppninni í gærkvöld. Síðari viðureignin verður í Lundi á laugardaginn.
  • Örn Vésteinsson Östenberg skoraði fimm mörk fyrir Tønsberg Nøtterøy í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær þegar liðið tapaði á útivelli fyrir Fjellhammer, 29:27, í Lørenskoghallen. Tønsberg Nøtterøy situr í 10. sæti af 14 liðum í deildinni. 
  • Magnus Orri Axelsson skoraði tvisvar sinnum fyrir Viking Håndbold sem vann stórsigur á HK Herulf Moss í 1. deildinni í Noregi í gær, 30:18. Viking Håndbold  er í þriðja sæti deildarinnar með fjögur stig að loknum þremur umferðum. 

  • Faðir Magnúsar Orra, Axel Stefánsson, fagnaði einnig sigri er liðið sem hann þjálfar, Storhamar, vann Byåsen, 31:17, í annarri umferð norsku bikarkeppninnar á heimavelli í gær. 
  • Elías Már Halldórsson gat einnig brosað út í annað eftir að liðið sem hann þjálfar, Fredrikstad Bkl., vann Romerike Ravens, 29:17, á útivelli í norsku bikarkeppninni í kvennaflokki.
  • Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði tvö mörk fyrir lið sitt Gjerpen HK Skien í gær þegar það steinlá fyrir Fana á heimavelli, 36:24, í norsku bikarkeppninni í handknattleik. 
  • Birta Rún Grétarsdóttir komst ekki á blað yfir markaskorara Oppsal er liðið beið lægri hlut fyrir Aker Topphåndball, 33:19, í bikarkeppninni í Noregi í gær. Aker lagði grunn að sigrinum í fyrri hálfleik en liðið var átta mörkum yfir að honum loknum, 17:9. 
  • Daníel Freyr Andrésson stóð í mark Guif frá Eskilstuna í gærkvöld þegar liðið tapaði fyrir Alingsås, 31:24, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í Svíþjóð. Aron Dagur Pálsson var ekki í leikmannahópi Guif.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -