- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís karla

- Auglýsing -

Verður lykilatriði að sprengja upp hraðann

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari Vals segir að töluverður munur sé á leik þýsku liðanna Flensburg og Göppingen. Valur mætti Flensburg í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrr á tímabilinu en tekur á móti liði Göppingen í 16-liða úrslitum keppninnar í Origohöllinni annað...

Sjö marka sigur ÍBV – jafnir FH að stigum

ÍBV er komið upp að hlið FH í Olísdeild karla í handknattleik með 24 stig eftir að hafa unnið ÍR, 35:28, í viðureign liðanna í Skógarseli í Breiðholti í kvöld. ÍBV hefur þar með 24 stig eins og FH...

Einar Rafn áfram með KA næstu tvö ár

Einar Rafn Eiðsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn félaginu keppnistímabilið 2025 á enda. Einar Rafn gekk til liðs við KA frá FH fyrir tveimur árum. Einar Rafn hefur svo sannarlega náð...
- Auglýsing -

Dagskráin: Mikilvæg stig í boði í leiknum í Skógarseli

Einn leikur fer fram í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld. ÍR-ingar fá leikmenn ÍBV í heimsókn í íþróttahúsið sitt nýja og glæsilega í Skógarseli í Breiðholti. Flautað verður til leiks klukkan 18. Um er að ræða leik sem...

Ömurlegt að ná ekki þessum titli

„Við hættum að fá stoppin í vörninni sem við fengum í fyrri hálfleik. Lentum í ströggli í vörninni. Síðan voru nokkrar sóknir um miðbik síðari hálfleiks þegar hökt var á okkur. Þar með hleyptum við Aftureldingu inn í leikinn...

Leynivopn úr smiðju Guðmundar kom Aftureldingu á sigurbraut

Það var alveg á mörkunum að Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar gæti gefið sér tíma til þess að ræða við handbolta.is í eina mínútu eftir sigur Aftureldingar á Haukum í úrslitaleik Poweradebikarsins í handknattleik í Laugardalshöll í kvöld. „Það skipti miklu...
- Auglýsing -

Nærri aldarfjórðungsbið Mosfellinga er á enda

Afturelding varð í kvöld bikarmeistari í handknattleik karla í annað sinn í sögu sinni 24 árum eftir að félagið fagnaði sínum fyrsta bikarmeistaratitli í Laugardalshöll. Afturelding vann Hauka með eins marks mun í úrslitaleik Poweradebikarsins, 28:27, í hnífjöfnum hörkuleik,...

Haukar – Afturelding: nokkrar staðreyndir fyrir úrslitaleikinn

Haukar og Afturelding leika til úrslita í Poweradebikar karla í handknattleik í Laugardalshöll klukkan 16 í dag. Hér fyrir neðan er teknar saman nokkrar staðreyndir um liðin. Haukar leika í níunda sinn til úrslita í bikarkeppninni. Síðast léku þeir í...

Selfoss skellti meisturunum og tyllti sér í þriðja sætið

Selfoss varð í kvöld annað liðið til þess að vinna Íslandsmeistara Vals í Olísdeildinni á keppnistímabilinu. Selfoss lagði Val með tveggja marka mun, 33:31, í Sethöllinni á Selfossi í upphafsleik 19. umferðar deildarinnar. Sigurinn var afar sannfærandi. Selfossliðið var...
- Auglýsing -

Bruno heldur áfram hjá KA

Markvörðurinn Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og leikur því áfram með sínu uppeldisfélagi næstu árin. Bruno hefur verið einn af betri markvörðum Olísdeildarinnar á leiktíðinni með 33% hlutfallsvörslu samkvæmt samantekt HBStatz. Bruni var...

Dagskráin: Valur fer á Selfoss – bikarúrslit 4. flokks í Höllinni

Einn leikur fer fram í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Vals sækja Selfoss heim. Leiknum er flýtt vegna þátttöku Vals í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í næstu og þar næstu viku. Til stóð að viðureignin færi fram á...

Eyjamenn skoruðu þrjú síðustu mörkin á Ísafirði

ÍBV fluttist upp í þriðja sæti Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld þegar liðið vann Hörð, 33:30, á viðureign liðanna í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði. ÍBV var í kröppum dansi gegn botnliðinu en tókst að skora þrjú síðustu...
- Auglýsing -

Afturelding hitti á stjörnuleik í Höllinni

Afturelding leikur til úrslita við Hauka í Poweradebikarnum í handknattleik karla á laugardaginn eftir að hafa hitt á sannkallaðan stjörnuleik í gegn Stjörnunni í undanúrslitum í Laugardalshöll í kvöld, 35:26. Staðan í hálfleik var 17:10. Aftureldingarmenn byrjuðu með miklum...

Haukar tóku Framara í karphúsið

Haukar leika til úrslita í Poweradebikarnum í handknattleik karla laugardaginn við annað hvort Aftureldingu eða Stjörnuna. Það varð ljóst eftir að leikmenn Hauka tóku Framara í karphúsið í Laugardalshöll í undanúrslitum í kvöld. Lokatölur, 32:24, eftir að Haukar voru...

Fleiri staðreyndir fyrir undanúrslitaleikina

Leikið verður til undanúrslita í bikarkeppni HSÍ, Poweradebikarnum, í Laugardalshöll í kvöld. Klukkan 18 eigast við Fram og Haukar en klukkan 20.15 verður flautað til leiks Aftureldingar og Stjörnunnar. Hér fyrir neðan er rennt yfir nokkrar staðreyndir um gengi liðanna...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -