- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Hoberg er nefbrotin og leikur ekki næstu vikur

Danska handknattleikskonan Ida Margrethe Hoberg tekur ekki þátt í tveimur næstu leikjum KA/Þórsliðsins í Olísdeild kvenna. Hoberg fékk þungt högg á andlitið í fyrri hálfleik í viðureign KA/Þórs og Hauka í KA-heimilinu í fyrrakvöld. Hún lét það ekk aftra...

Dagskráin: Barist um síðasta sætið í undanúrslitum

Síðasti leikur átta liða úrslita Powerade-bikars karla (bikarkeppni HSÍ) fer fram í kvöld. Um sannkallaðan stórleik er að ræða í TM-höllinni. Bikarmeistarar Vals sækja Stjörnuna heim. Liðin eru í fyrsta og fjórða sæti deildarinnar. Flautað verður til leiks klukkan...

Þurfum fullt hús gegn PAUC á þriðjudaginn

„Ég vil sjá fullt hús á leikinn við PAUC á þriðjudaginn, eins og var á leiknum við Flensburg fyrir áramótin. Við þurfum á því að halda enda komnir í frábæra stöðu í keppninni og tryggjum okkur sæti í 16-liða...
- Auglýsing -

Þorsteinn Leó meiddist á vinstri ökkla

Efnilega stórskytta Aftureldingar, Þorsteinn Leó Gunnarsson, snerist illa á vinstri ökkla um miðjan síðari hálfleik í viðureign Aftureldingar og KA í átta liða úrslitum Poweradebikarsins í KA-heimilinu í kvöld. Þorsteinn Leó kom illa niður á vinstri fótinn eftir að...

Afturelding áfram í háspennuleik – Haukar í undanúrslit

Afturelding og Haukar bættust í flokk með Fram í undanúrslit Poweradebikakeppninnar í handknattleik karla í kvöld. Afturelding vann KA í framlengdum háspennuleik í KA-heimilinu, 35:32. Haukar lögðu Hörð nokkuð örugglega með sjö marka marka mun á Ásvöllum, 37:30, eftir...

Eyjamenn unnu sigur eftir meira en tveggja mánaða bið

ÍBV lék í kvöld sinn fyrsta leik í Olísdeild karla í meira en tvo mánuði þegar loksins var mögulegt að koma viðureigninni við Selfoss á dagskrá í Vestmannaeyjum. Veður setti strik í reikninginn um síðustu helgi. Í kvöld var...
- Auglýsing -

Framarar fyrstir í undanúrslit

Fram varð fyrsta liðið sem tryggði sér sæti í undanúrslitum Poweradebikar karla í handknattleik með öruggum sigri á ÍR í Seljaskóla í kvöld, 34:23. Framliðið lék mjög góðan leik frá upphafi til enda. Þeir voru skiplagðir og agaðir og...

KA/Þór tryggði sér fimmta sætið

KA/Þór hafði betur í uppgjöri liðanna í fimmta og sjötta sæti Olísdeildar kvenna í KA-heimilinu í kvöld, 32:28, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 19:16. KA/Þór hefur þar með 12 stig fimmta sæti eftir 15 leiki. Haukar...

Tryggvi Garðar úr leik næstu vikurnar

Tryggvi Garðar Jónsson leikmaður Íslands- og bikarmeistara Vals sleit sin í baugfingri hægri handar í viðureign Flensburg og Vals í Evrópudeildinni. Síðan er liðin rúm vika og talið er sennilegt að Tryggvi verði ekki kominn á ferðina aftur með...
- Auglýsing -

Getum tryggt okkur þriðja sætið í riðlinum

„Leikur okkar var frábær og stemningin í húsinu alveg geggjuð. Mikilvægi sigursins er síðan mjög mikið í þessum ótrúlega jafna riðli sem við erum í. Enginn annar riðill keppninnar er eins jafn og þessi,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari...

Daníel Freyr verður liðsmaður FH í sumar

Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH og gengur til liðs við félagið í sumar. Handknattleiksdeild FH tilkynnti þeta í morgun. Daníel Freyr, sem er 33 ára gamall, er öllum hnútum kunnugur hjá FH...

Dagskráin: Fimm hörkuleikir standa fyrir dyrum

Þrír af fjórum leikjum átta liða úrslita Poweradebikars karla í handknattleik (bikarkeppni HSÍ) fara fram í kvöld. Fjórða viðureignin verður á föstudaginn. Meðal leikja kvöldsins, sem nánar eru teknir saman hér fyrir neðan, er viðureign Hauka og Harðar á...
- Auglýsing -

Evrópudeildin – 8. umferð: úrslit og staðan

Áttunda umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik fór fram í kvöld. Að vanda voru 12 leikir á dagskrá. Fyrir utan Valsmenn voru fleiri Íslendingar í sviðsljósum leikjanna, bæði leikmenn og þjálfarar. Tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni og fara þær fram...

Valsmenn gjörsigruðu sauðþráa Spánverja

Valsmenn eru komnir í þriðja sæti B-riðils Evrópudeildarinnar í handknattleik eftir magnaðan leik gegn sauðþráum leikmönnum og þjálfara spænska liðsins Benidorm í Origohöllinni í kvöld, 35:29, eftir að hafa verið yfir, 17:15, að loknum fyrri hálfleik. Valsmenn léku frábærlega...

Ótrúlegir yfirburðir ÍBV

ÍBV vann afar öruggan sigur á Stjörnunni í kvöld í Vestmannaeyjum þegar liðin í öðru og þriðja sæti deildarinnar mættust í 16. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik. Lokatölur, 30:24, eftir að ÍBV var þremur mörkum yfir í leiknum, 14:11....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -