- Auglýsing -
- Auglýsing -

Útlönd

- Auglýsing -

Lunde með og sömu úrslit 18 árum síðar – Níundu gullverðlaun Þóris

Noregur varð í kvöld Evrópumeistari í handknattleik kvenna í níunda sinn eftir sigur á Dönum, 27:25, í úrslitaleik í Ljubljana. Þetta eru sömu úrslit og þegar lið þjóðanna mættust síðast í úrslitaleik á Evrópumóti fyrir 18 árum. Þá eins...

Svartfellingar taka bronsið með sér heim

Svartfjallaland fékk bronsverðlaun á Evrópumótinu í handknattleik kvenna eftir sigur á Frökkum í framlengdum háspennuleik í Ljubljana í kvöld, 27:25. Sigurinn var verðskuldaður. Svartfellska liðið var sterkara lengst af leiksins og efldist við hverja raun. Frakkar virtust óstyrkir lengi...

Reistad sú besta á EM – úrslitaleikurinn í kvöld

Norska handknattleikskonan Henny Reistad hefur verið valin mikilvægasti leikmaður Evrópumóts kvenna sem lýkur kvöld. Tilkynnt var um úrvalslið mótsins rétt fyrir hádegið en þúsundir áhugafólks um handknattleik mun hafa tekið þátt í að velja liðið eftir því sem fram...
- Auglýsing -

Átján ár frá síðasta úrslitaleik Noregs og Danmerkur

Frændþjóðirnar Danmörk og Noregur leika til úrslita á Evrópumóti kvenna í handknattleik á sunnudagskvöldið í Ljubljana í Slóveníu. Átján ár eru liðin síðan lið þjóðanna mættist síðast í úrslitaleik á stórmóti. Það var á EM í Ungverjalandi 2004 og...

EM kvenna22 – undanúrslit, úrslitaleikir

Aðeins fimm leikir eru eftir á Evrópumóti kvenna í handknattleik sem hófst í Norður Makedóníu, Slóveníu og Svartfjallalandi föstudaginn 4. nóvember. Síðustu leikir mótsins fara fram í Arena Stožice í Ljubljana á morgun, föstudag, og á sunnudaginn þegar krýndir...

Sannfærandi Svíar hrepptu fimmta sætið

Svíþjóð hreppti fimmta sætið á Evrópumóti kvenna í handknattleik með því að leggja hollenska landsliðið í úrslitaleik, 37:32, um sætið í Arena Stožice í Ljubljana í dag. Svíar voru með yfirhöndina í leiknum frá upphafi. Í hálfleik munaði fimm...
- Auglýsing -

Molakaffi: Parrondo, Elliði Snær, Pandi, Raicevic, Göppingen, Jørgensen, Goluža

Roberto Parrondo hefur skrifað undir samning um áframhaldandi þjálfun þýska 1. deildarliðsins MT Melsungen til ársins 2025. Tveir íslenskir landsliðsmenn leika undir stjórn Parrondo, Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson. Parrondo tók við þjálfun Melsungen fyrir rúmu ári...

Cots leikur um bronsið á Afríkumeistaramótinu

Britney Cots, leikmaður Stjörnunnar, er í leikmannahópi Senegal sem tekur nú þátt í Afríkumeistaramótinu í handknattleik kvenna í Dakar í Senegal. Cots og samherjar hafa þegar tryggt sér farseðilinn á HM í desember á næsta ári en Senegal leikur...

Danir skelltu meisturunum – Frakkar bíða á föstudag

Danir urðu í kvöld fyrstir til þess að leggja heims- og Evrópumeistara Noregs á Evrópumótinu í Slóveníu, 31:29, og tryggja sér þar með efsta sætið í milliriðli eitt á mótinu. Það þýðir að Danir leika gegn Svartfellingum í undanúrslitum...
- Auglýsing -

EM kvenna22 – milliriðlakeppni leikjadagskrá, úrslit

Milliriðlakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik hófst fimmtudaginn 10. nóvember með tveimur leikjum í riðli eitt sem fram fer í Ljubljana. Fyrstu leikir í milliriðli tvö í Skopje fóru fram föstudaginn 11.11. Milliriðlakeppninni lýkur 16. nóvember. Landslið sex þjóða...

Svíar mæta sennilega Hollendingum

Svíar leika um fimmta sætið á EM kvenna á föstudaginn. Mestar líkur eru á að Hollendingar verði andstæðingar Svía eftir stórsigur á Svartfellingum, 42:25, í Skopje í kvöld. Svíar unnu Króata í Ljubljana, 31:27. Króatar hafna þar með í...

Ungverjar sendu Dani í undanúrslit

Danir eru komnir í undanúrslit Evrópumóts kvenna í handknattleik þótt þeir eigi eftir síðasta leik sinn í milliriðlakeppni mótsins í kvöld gegn Noregi. Ungverjar sáu til þess að danska landsliðið tekur sæti í undanúrslitum. Ungverska landsliðið vann slóvenska landsliðið...
- Auglýsing -

Neagu sló EM-markamet Guðjóns Vals

Rúmenska handknattleikskonan Cristina Georgiana Neagu sló í gær markamet Guðjóns Vals Sigurðssonar og er nú orðin markahæsti handknattleiksmaður í sögu Evrópumóta landsliða. Neagu hefur skoraði 296 mörk í 50 leikjum í lokakeppni EM, átta fleiri en Guðjón Valur skoraði...

Þjóðverjar vöfðust ekki fyrir Frökkum

Frakkar létu Þjóðverja ekki vefjast fyrir sér í viðureign þjóðanna á Evrópumóti kvenna í handknattleik í Arena SC Boris Trajkovski keppnishöllinni í Skopje í kvöld. Franska liðið var með yfirhöndina frá upphafi til enda og vann öruggan sigur, 29:21,...

Svartfellingar stimpluðu sig inn í undanúrslit

Svartfellingar voru önnur þjóðin til þess að tryggja sér sæti í undanúrslit á Evrópumeistaramótinu í handknattleik kvenna. Það varð staðfest með sigri svartfellska landsliðsins á rúmenska landsliðinu í milliriðlakeppni EM í kvöld, 35:34, í háspennuleik í Skopje. Svartfellingar hafa sex...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -