Norska kvennalandsliðið í handknattleik, undir stjórn Selfyssingsins Þóris Hergeirssonar, er eina taplausa handknattleikslið Ólympíuleikanna þegar riðlakeppnin er að baki í kvenna- og karlaflokki. Noregur vann Japan örugglega í síðasta leik riðlakeppninnar í Tókýó í dag, 37:25, og hafnaði í...
Ungverska landsliðið í handknattleik kvenna sendi Spánverja heim af Ólympíuleikunum í morgun. Ungverjar unnu Svíþjóð, 26:23, í síðasta leik B-riðils og kræktu þar með í fjórða sæti riðilsins. Spánverjar féllu niður í fimmta sæti og hafa þar með lokið...
Landslið Frakka og Norðmanna í handknattleik karla urðu fyrir skakkaföllum í gær þegar leikmenn meiddust og ljóst að þeir verða jafnvel ekki meira með á Ólympíuleikunum.
Timothey N'Guessan tognaði á kálfa snemma í viðureign Frakklands og Noregs í gær í...
Nikola Karabatic lék sinn 35. leik á Ólympíuleikum í gær þegar franska landsliðið mætti því norska. Karabatic jafnaði þar með metin við rússneska markvörðinn Andrei Lavrov sem leikið hefur flesta leiki í handknattleikskeppni Ólympíuleika. Karabatic bætir metið þegar Frakkar...
„Við erum gríðarlega ánægðir með að hafa náð sigri í síðasta leiknum. Frammistaða liðsins var frábær,“ sagði Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans, við handbolta.is í dag eftir sigur japanska landsliðsins á landsliði Portúgals í lokaumferð riðlakeppni handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Tókýó,...
Eftir sautján sigurleiki í röð á stórmótum í handknattleik þá máttu Ólympíu- og heimsmeistarar Dana sætta sig við þriggja marka tap fyrir Svíum í lokaleik riðlakeppni Ólympíuleikanna í Tókýó í dag, 33:30. Svíar voru fjórum mörkum yfir að loknum...
Þýska landsliðið í handknattleik karla, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, tryggði sér þriðja sæti A-riðils handknattleikskeppni Ólympíuleikanna með öruggum sigri á brasilíska landsliðinu í síðasta leiknum í þessum riðli, 29:25. Leikmenn þýska liðsins hresstust þegar Alfreð byrsti sig við þá...
„Þetta er stórkostlegt,“ sagði Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari Barein, í samtali við handbolta.is í morgun eftir að ljóst var að Bareinar leika í átta liða úrslitum handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í karlaflokki. Um er að ræða stórsigur fyrir Bareina sem eru nú...
Noregur vann Frakkland í lokaleik þeirra í A-riðli handknattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum, 32:29, eftir jafna stöðu í hálfleik, 15:15. Úrslit leiksins breyta engu um niðurstöðuna í riðlinum. Frakkar verða efstir, Spánverjar í öðru sæti, Þjóðverjar sem leika við Brasilíu...
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í Barein náðu þeim glæsilega árangri í nótt að komast í átta liða úrslit í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna, en landslið Barein er að þátttakandi í fyrsta sinn á Ólympíuleikum. Bareinar fengu hjálp frá japanska...
Díana Dögg Magnúsdóttir og samherjar hennar í þýska 1. deildarliðinu BSV Sachsen Zwickau eru við æfingar hér á landi eftir því sem handbolti.is kemst næst. Meðal annars hefur liðið verið í Vestmannaeyjum en verður einnig í Reykjavík eftir helgina....
Þegar ein umferð er eftir af riðlakeppni Ólympíuleikanna í handknattleik kvenna þá trónir Jovanka Radicevic frá Svartfjallalandi í efsta sæti á lista yfir markahæstu leikmenn keppninnar. Radicevic hefur að jafnaði skorað sjö mörk í leik og því alls...
Fjórar umferðir eru að baki í kvennaflokki í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Tókýó. Hér fyrir neðan eru úrslit leikja til þessa og staðan í riðlunum tveimur ásamt leikjum lokaumferðarinnar mánudaginn 2. ágúst.
A-riðill:Holland – Japan 32:21.Svartfjallaland – Angóla 33:22.Noregur - Suður...