Adela Eyrún Jóhannsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Sylvía Bjarnadóttir hafa framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Selfoss til næstu þriggja ára.
Adela Eyrún er skytta á nítjánda ári sem hefur leikið með meistaraflokki Selfoss síðustu tímabil og verið að fá stærra...
Framlenging á samningum við Snorra Stein Guðjónsson landsliðsþjálfara karla og Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfara karla er liður í langtímastefnu HSÍ þar sem horft er markvisst til framtíðar með Ólympíuleikana að leiðarljósi, segir í tilkynningu HSÍ. Fram kom á blaðamannafundi sambandsins...
Handknattleiksdómararnir Gjorgji Nachevski og Slave Nikolov hafa verið dæmdir í tveggja ára bann frá öllum störfum tengdum handboltaleikjum á vegum Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Auk þess verða þeir að greiða 5.000 evrur í sekt, hvor fyrir sig, ríflega 700 þús...
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur skrifað undir nýjan samning um þjálfun karlalandsliðsins. Samningurinn gildir til næstu sex ára eða fram yfir Ólympíuleikana í Brisbane 2032.
Um leið hefur Arnór Atlason aðstoðarþjálfari einnig samið við HSÍ til sama...
Handknattleikssamband Íslands hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14 í dag. Tilefni fundarins er samkvæmt tilkynningu er framtíðarsýn A landsliðs karla.
Hægt er að fylgjast með streymi frá fundinum hér fyrir neðan.
https://www.youtube.com/live/J4zIkr6nq7A
Valur lagði KA í þriðja og síðasta sinn í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í N1-höllinni í kvöld. Lokatölur, 38:34. Í hálfleik skakkaði þremur mörkum á liðunum, 19:16, Val í vil.Valsmenn leika þar með til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn annað...
Þórir Hergeirsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik kvenna, hefur verið kallaður inn í hóp sem leitar að næsta landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik karla. „Hann er gulls ígildi fyrir okkur,“ segir Erik Langerud, framkvæmdastjóri norska handknattleikssambandsins, í samtali við VG...
Handknattleiksþjálfarinn Díana Guðjónsdóttir hefur samið við Fram um að taka við starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna næstu þrjú árin. Auk þess mun Díana taka við þjálfun U-liðs kvenna og 3. flokks kvenna. Árum saman hefur Díana þjálfað hjá Haukum með...
Arnór Viðarsson og liðsfélagar í HF Karlskrona halda lífi í einvígi sínu við deildarmeistara IFK Kristianstad í átta liða úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Karlskrona vann í Kristianstad Arena, 34: 30, og náði í fyrsta vinning sinn í...
Fátt getur komið í veg fyrir að One Veszprém hafni í efsta sæti ungversku 1. deildarinnar í handknattleik enn eitt árið eftir að liðið vann höfuðandstæðing sinn, OTP Bank-Pick Szeged, á heimavelli í dag með sex marka mun, 30:24....