Soffía Helen Sölvadóttir, bráðefnilegur markvörður Gróttu, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið. Hann gildir til næstu tveggja ára, til sumarsins 2028.
Soffía Helen er einungis 15 ára gömul en hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað sína fyrstu meistaraflokksleiki...
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur valið landsliðið sem mætir Afríkumeisturum Egyptalands í Kaíró 13. og 15. maí. Þrír nýliðar eru í hópnum; FH-ingarnir Jón Bjarni Ólafsson línumaður og markvörðurinn Jón Þórarinn Þorsteinsson. Þriðji nýliðinn er Tryggvi...
Leikið verður til þrautar í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld þegar ÍBV og Haukar mætast í oddaleik í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik. Liðin hafa tvo vinninga hvort. Viðureignin hefst klukkan 18 og verður send út beint á...
FH-ingar jöfnuðu metin í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld með öruggum sigri, 31:25, á Val í annarri viðureign liðanna í Kaplakrika. Staðan var 18:15 þegar fyrri hálfleikur var að baki. FH-liðið sendi skýr skilaboð til Vals...
Elín Klara Þorkelsdóttir og samherjar í IK Sävehof fara vel af stað í undanúrslitaeinvígi við Höörs HK H 65 um sænska meistaratitilinn í handknattleik. Sävehof vann í kvöld með þriggja marka mun á heimavelli, 31:28, eftir að hafa verið...
Færeyski handknattleiksmaðurinn Trúgvi Hávardsson hefur samið við HK til tveggja ára frá og með næstu leiktíð. Trúgvi kemur til HK frá StÍF þar sem hann hefur spilað upp alla yngri flokka.
„Trúgvi er ungur og mjög spennandi leikstjórnandi sem við...
Victor Norlyk fékk heilahristing og kastaði upp eftir leik með Mors-Thy gegn Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni um þarsíðustu helgi. Af þeim sökum gat hann ekki spilað um nýliðna helgi en er í danska landsliðshópnum sem landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen tilkynnti...
Þýska félagið HSG Wetzlar stendur þessa dagana í ströngu við að semja við leikmenn fyrir karlaliðið, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir hvort Wetzlar muni leika áfram á meðal þeirra bestu eða í B-deildinni á...
Haukur Þrastarson, leikstjórnandi Rhein-Neckar Löwen, og Elliði Snær Viðarsson, línumaður VfL Gummersbach, eru báðir í úrvalsliði 29. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa staðið sig vel í leikjum með liðum sínum síðastliðið fimmtudagskvöld.
Haukur átti magnaðan leik fyrir Rhein-Neckar...
Ísabella Haraldsdóttir, ungur og efnilegur leikstjórnandi hjá HK, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til næstu tveggja ára, sumarsins 2028.
Ísabella er einungis 16 ára gömul og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk liðsins, þrjá talsins, í...