- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

FH-ingar fóru á kostum og jöfnuðu einvígið

- Auglýsing -

FH-ingar jöfnuðu metin í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld með öruggum sigri, 31:25, á Val í annarri viðureign liðanna í Kaplakrika. Staðan var 18:15 þegar fyrri hálfleikur var að baki. FH-liðið sendi skýr skilaboð til Vals í kvöld um það hver ræður húsum í Kaplakrika.

Næsti leikur liðanna fer fram á fimmtudagskvöld í N1-höllinni á Hlíðarenda og hefst viðureignin klukkan 19.30.


Valur, sem vann fyrstu viðureignina, 37:33, var aðeins einu sinni yfir í leiknum í kvöld, 0:1. Annars átti liðið mjög á brattann að sækja, ekki síst í síðari hálfleik þegar FH hafði öll ráð í hendi sér, ekki síst í vörninni, en einnig í sóknarleiknum með löngum og yfirveguðum sóknum og fáum sóknarmistökum, ólíkt fyrsta leiknum.

FH-liðið lék frábæran varnarleik frá byrjun til enda að þessu sinni. Minnti varnarleikurinn á það besta sem FH sýndi í undanúrslitaleikjunum við Hauka. Þeir brutu Valsmenn algjörlega á bak aftur. Þá sjaldan að veik von vaknaði hjá Val í síðari hálfleik til þess að mynda smá spennu þá sá Jón Þórarinn Þorsteinsson markvörður FH til þess að slökkva vonarneistann. Leikmenn Vals komust hvorki lönd né strönd. Þeir skoruðu ekki fyrsta mark sitt í síðari hálfleik fyrr en eftir hálfa áttundi mínútu. Ellefu mínútum fyrir leikslok var FH sjö mörkum yfir, 27: 20.

Sem fyrr segir var sóknarleikur FH mjög yfirvegaður með Garðar Inga Sindrason, Ómar Darra Sigurgeirsson og Jón Bjarna Ólafsson í aðalhlutverkum. Garðar Ingi skoraði sjö mörk og átta sköpuð færi.

Burðarásar Valsliðsins komust hvorki lönd né strönd í kvöld. Sumir voru hreinlega slakir.

Mörk FH: Garðar Ingi Sindrason 7, Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Birkir Benediktsson 4, Einar Örn Sindrason 3/2, Kristófer Máni Jónasson 3/1, Birgir Már Birgisson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Símon Michael Guðjónsson 2, Gunnar Kári Bragason 1, Leonharð Þorgeir Harðarson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 6/1, 37,5% – Daníel Freyr Andrésson 4/1, 21,1%.

Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 4/3, Andri Finnsson 3, Daníel Montoro 3, Gunnar Róbertsson 3/1, Allan Norðberg 2, Daníel Örn Guðmundsson 2, Magnús Óli Magnússon 2, Þorgils Jón Svölu Baldursson 2, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 2, Bjarni í Selvindi 1, Dagur Leó Fannarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 10/3, 25%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -