Renars Uscins, örvhent skytta Hannover-Burgdorf og þýska landsliðsins, gengur til liðs við franska stórliðið PSG þegar samningur hans rennur út sumarið 2027. Þessu heldur þýski miðillinn Sport Bild fram fullum fetum.
Þar segir að Uscins, sem er 23 ára gamall,...
FH og Valur mætast öðru sinni í úrslitaeinvígi Olísdeildar karla í kvöld. Leikurinn fer fram í Kaplakrika klukkan 19.30 og verður sýndur í beinni útsendingu á Handboltapassanum.
Staðan er 1:0 fyrir Val í einvíginu eftir 37:33 sigur í fyrsta leik...
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson, leikmaður One Veszprém í Ungverjalandi, var nýverið valinn mikilvægasti leikmaður bikarhelgarinnar í Ungverjalandi þegar liðið vann bikarmeistaratitilinn. Hann á sér draum um að komast í undanúrslitahelgina, „Final Four,“ í Meistaradeild Evrópu.
Bjarki Már hefur aldrei á...
FH-ingurinn Jón Bjarni Ólafsson verður gjaldgengur með liðinu í kvöld þegar FH og Valur mætast öðru sinni í úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í Kaplakrika. Jón Bjarni hlaut útilokun með rauðu og bláu spjaldi snemma á upphafsmínútum síðari hálfleiks...
Tvö frönsk lið leika unnu sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í handknattleik um helgina þegar síðari viðureignir átta liða úrslita fóru fram. Franska meistaraliðið Metz hefur átt sæti í undanúrslitum af og til undanfarin ár en meiri athygli...
Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof töpuðu með tveggja marka mun fyrir Malmö HK, 31:29, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var í Malmö. Næsti leikur fer fram í Partille...
Með miklum endaspretti tókst Lenu Margréti Valdimarsdóttur og samherjum í Skara HF að vinna Önnereds, 25:24, í fyrsta undanúrslitaleik liðanna í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag. Lena Margrét skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Næsti leikur...
Oddaleikur verður á milli Stjörnunnar og Gróttu um keppnisrétt í Olísdeild kvenna í handknattleik. Stjarnan jafnaði metin í úrslitum liðanna í umspilinu í dag með stórsigri í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi, 36:24, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í...
SC Magdeburg færðist skrefi í dag nær þýska meistaratitlinum í handknattleik karla með baráttusigri á Stuttgart, 30:26, í Porsche Arena í Stuttgart. Magdeburg hefur þar með sjö stiga forskot í efsta sæti deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir.
Leikmenn Magdeburg...
Hafþór Már Vignisson hefur framlengt samning sinn við Þór til næstu tveggja ára eftir því sem fram kemur í tilkynningu handknattleiksdeildar félagsins í dag. Hafþór Már er einn af uppöldum leikmönnum félagsins. Hann gekk á ný til liðs við...