Vlado Šola hefur skrifað undir nýjan samning um þjálfun karlalandsliðsins Svartfjallalands fram yfir heimsmeistaramótið sem fram fer í janúar á næsta ári í Danmörku, Króatíu og Noregi. Šola, sem er Króati og fyrrverandi markvörður, tók við þjálfun svartfellska landsliðsins...
Arnór Snær Óskarsson fékk draumabyrjun í fyrsta leik sínum fyrir Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Hann skoraði sex mörk í jafnmörgum skotum auk þess sem Gummersbach vann leikinn, sem var við Leipzig, 30:29. Þýski ...
Landsliðsmanninum Sigvalda Birni Guðjónsson líkar svo vel lífið hjá norska meistaraliðinu Kolstad í Þrándheimi að hann hefur skrifað undir nýjan sex ára samning við félagið, fram til loka leiktíðarinnar sumarið 2030. Frá þessu er sagt á heimsíðu Kolstad í...
Þórir Hergeirsson landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik kvenna og ríkjandi Evrópumeistara ætlar að leika alvöru landsleiki í aðdraganda Ólympíuleika í sumar. Ákveðið hefur verið að norska landsliðið leiki tvisvar sinnum við heimsmeistara Frakka í byrjun júlí og mæti síðan danska...
Handknattleiksmaðurinn Dánjal Ragnarsson, sem lék með ÍBV í rúm tvö ár, varð á laugardaginn bikarmeistari í heimalandi sínu, Færeyjum, með VÍF frá Vestmanna. VÍF vann Neistan frá Þórshöfn, uppeldisfélag Dánjals, 31:23, í úrslitaleik í Høllinni á Hálsi í Þórshöfn....
Rakel Dögg Bragadóttir og Sigurjón Friðbjörn Björnsson hafa valið eftirtalda leikmenn til æfinga 29. febrúar – 3. mars með U18 ára landsliði kvenna í handknattleik.
Markverðir:Ágústa Tanja Jóhannsdóttir, Selfossi.Elísabet Millý Elíasardóttir, Stjörnunni.Ingunn María Brynjarsdóttir, Fram.Sif Hallgrímsdóttir, KA/Þór.
Aðrir leikmenn:Adela Eyrún Jóhannsdóttir,...
Stiven Tobar Valencia var markahæstur hjá Benfica í gær þegar liðið vann Porto, 28:27, í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik á heimavelli. Stiven Tobar skoraði sex mörk í sjö skotum. Þetta var annar tapleikur Porto í deildinni á keppnistímabilinu...
Í dag fóru fram síðustu leikir síðari umferðar 16-liða úrslita Evrópubikarkeppni karla í handknattleik. Þar með liggur fyrir hvað sjö liðum Valur getur mætt þegar dregið verður úr skálunum í átta liða úrslit á þriðjudagsmorgun í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu...
Selfoss varð í kvöld deildarmeistari í Grill 66-deild kvenna að loknum öruggum sigri á ungmennaliði Vals, 40:25, í N1-höllinni á Hlíðarenda. Selfoss hefur haft mikla yfirburði í deildinni á leiktíðinni og þótt liðið eigi enn eftir þrjá leiki þá...
„Ég ætla ekki að segja að ég hafi verið rólegur síðustu mínútur leiksins meðan Selfoss saxaði á forskot okkar. En þetta hafðist og ég er gríðarlega stoltur af strákunum,“ sagði Andri Berg Haraldsson þjálfari Víkings í samtali við handbolta.is...
SC Magdeburg missti af tveimur stigum í dag í kapphlaupinu við Füchse Berlin um þýska meistaratitilinn í handknattleik karla þegar liðið tapaði í heimsókn sinni til Hannover-Burgdorf, 28:27. Uladzislau Kulesh skoraði sigurmarkið fjórum sekúndum fyrir leikslok. Heiðmar Felixson er...
Víkingur vann Selfoss í uppgjöri tveggja neðstu liða Olísdeildar karla, 21:18, í hreint ótrúlegum handboltaleik í Safamýri í síðdegis þar sem kapp og spenna virtist bera leikmenn ofurliði. Sigurinn var svo sannarlega torsóttur.Selfoss er þar með áfram neðstur með...
Matthildur Lilja Jónsdóttir hefur framlengt samningi sínum við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2027. Matthildur Lilja er í stóru hlutverki hjá ÍR í Olísdeildinni í vetur auk þess að hafa verð á meðal öflugari leikmanna liðsins á síðasta vori þegar...
Arnar Freyr Arnarsson landsliðsmaður í handknattleik hefur skrifað undir nýjan samning við þýska liðið MT Melsungen. Samningurinn er til eins árs, út leiktíðina 2025, með ákvæði um að hægt verði að bæta einu ári við.
Arnar Freyr, sem er 27...
Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson hafa valið 20 leikmenn til æfinga hjá U20 ára landsliði kvenna í handknattleik. Æfingarnar fara fram 29. febrúar – 3. mars.
U20 ára landslið kvenna tekur þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer...