- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Parrondo hættir með egypska landsliðið

Spænski handknattleiksþjálfarinn Roberto Parrondo heldur ekki áfram þjálfun egypska karlalandsliðsins í handknattleik þegar samningur hans við egypskra handknattleikssambandið rennur út á næstunni. Framkvæmdastjóri sambandsins, Amr Salah, staðfesti þetta í gær. Parrondo hefur þjálfað landslið Egyptalands í fjögur ár og náð...

„Mjög erfið meiðsli og sársaukafull“

Róbert Aron Hostert, einn aðalmaður Vals, leikur ekki með Íslands- og bikarmeisturum næstu vikurnar og reyndar er alveg óljóst á þessari stundu hversu lengi hann verður frá keppni. Róbert Aron staðfesti við handbolta.is kvöld að hann væri með brjósklos...

Félagaskipti á síðasta degi – þrír bætast í hóp Harðar

Í dag er síðasti dagur til félagaskipta í handknattleik hér heima. Nokkur félagaskipti hafa verið afgreidd í dag á skrifstofu HSÍ sem enn er opin þegar þetta er ritað. Þar á meðal hafa runnið í gegn félagaskipti þriggja leikmanna...
- Auglýsing -

Katla María ennþá markahæst – Hanna og Helena skammt á eftir

Katla María Magnúsdóttir, Selfossi, er áfram markahæst í Olísdeild kvenna þegar 14 umferðum af 21 er lokið. Katla María hefur verið markahæst nánast frá fyrstu umferð. Hún virðist kunna vel við sig í stærra hlutverki eftir að hafa snúið...

Næsti heimaleikur verður í Laugardalshöll

Gert er ráð fyrir að næsti heimaleikur íslenska karlalandsliðsins í handknattleik fari fram í Laugardalshöll sunnudaginn 12. mars. Þá er von á Tékkum í heimsókn til viðureignar í undankeppni EM 2024. Síðast lék íslenska landsliðið í Laugardalshöll 4. nóvember...

Dagskráin: Grótta fær Íslandsmeistarana í heimsókn

Gerð verður önnur tilraun í kvöld til þess að hefja keppni á þessu ári í Olísdeild karla. Íslands- og bikarmeistarar Vals sækja þá Gróttu heim úr leik sem frestað var í 7. umferð í lok október vegna þátttöku Vals...
- Auglýsing -

Molakaffi: Guðrún Erla, Jacobsen, Onesta, Nedeff, óánægja, of seint, Hansen

Guðrún Erla Bjarnadóttir hefur skrifað undir nýjan samning um að leika áfram með Fjölni/Fylki í Grill 66-deildinni. Guðrún Erla kom til félagsins á síðasta sumri frá HK. Hún er markahæsti leikmaður Fjölnis/Fylkis á leiktíðinni með 73 mörk í 10...

Ekkert varð úr samningi Tertnes við Lovísu

Ekkert varð af því að handknattleikskonan Lovísa Thompson gengi til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Tertnes eins og til stóð. Tertnes sagði frá komu hennar rétt fyrir miðjan desember og var þess þá getið að Lovísa léki með liðinu út...

Ísland hefur aldrei skorað fleiri mörk á HM – met frá 2003 féll

Íslenska landsliðið í handknattleik hefur aldrei skorað jafn mörg mörk að meðaltali í leik og á HM 2023. Að jafnaði skoraði liðið 34,5 mörk í leik. Fyrra met er frá HM í Portúgal 2004, 32,4 mörk eins og...
- Auglýsing -

Nýliði heimsmeistaranna í úrvalsliði HM

Þrefaldir heimsmeistarar Dana eiga tvo leikmenn í úrvalsliði heimsmeistaramótsins í handknattleik. Annarsvegar Mathias Gidsel sem valinn var mikilvægasti eða besti leikmaður mótsins og hinsvegar hinn 22 ára gamli Simon Pytlick sem valinn var besta vinstri skytta mótsins. Pyltick var...

Gidsel markahæstur á HM – Bjarki Már varð sjötti

Daninn Mathias Gidsel varð markakóngur heimsmeistaramótsins í handknattleik sem lauk í Stokkhólmi í gærkvöld. Gidsel skoraði 60 mörk í níu leikjum danska landsliðsins á mótinu, eða 6,66 mörk að jafnaði í leik. Heimsmeistarar Dana eiga þrjá leikmenn á meðal...

Molakaffi: Jakob, Kristinn, Egill Már, Pytlick, Lauge, Mossestad

Jakob Lárusson hafði betur í gær þegar íslensku þjálfararnir mættust með lið sín í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna. Kyndill, sem Jakob þjálfar, sótti EB heim og vann með átta marka, 32:24. Kristinn Guðmundsson er þjálfar EB frá Eiði.  Kyndill...
- Auglýsing -

Leita enn að fyrsta sigrinum

Hvorki gengur né rekur hjá leikmönnum liðs Kórdrengja að krækja í fyrsta sigurinn í Grill 66-deild karla á þessari leiktíð. Í dag töpuðu Kórdrengir 11. leiknum í röð í deildinni þegar þeir mættu ungmennaliði Hauka á heimavelli beggja liða,...

Fjórtán marka sigur og aftur upp að hlið Gróttu

Ungmennalið Fram vann stórsigur á ungmennliði HK í Grill 66-deild kvenna í handknattleik í Úlfarsárdal í dag, 40:26, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:15. Ingunn María Brynjarsdóttir markvörður hélt uppteknum hætti frá síðustu...

Á engin orð til þess að lýsa tilfinningunni

„Ég á ekki orð til að lýsa þeirri tilfinningu sem fylgir því að standa í þeim sporum sem enginn annar hefur áður gert,“ sagði Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfari Dana í sjöunda himni í samtali við TV2 í heimalandi sínu strax...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -