- Auglýsing -
- Auglýsing -

Á engin orð til þess að lýsa tilfinningunni

Hinn einstaki þjálfari danska landsliðsins Nikolaj Jacobsen glaður á hliðarlínunni þegar hillti undir sigurinn í kvöld. Mynd/EPA
- Auglýsing -

„Ég á ekki orð til að lýsa þeirri tilfinningu sem fylgir því að standa í þeim sporum sem enginn annar hefur áður gert,“ sagði Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfari Dana í sjöunda himni í samtali við TV2 í heimalandi sínu strax eftir að flautað var til leiksloka í Tele 2-Arena í Stokkhólmi í kvöld.

Jacobsen hafði þá stýrt danska landsliðinu til sögulegs sigurs á þriðja heimsmeistaramótinu í röð með sigri á Frökkum í úrslitaleiknum, 34:29.

Stoltur af strákunum

„Strákarnir mínir hafa verið einstaklega einbeittir allt mótið og leikið stórkostlegan handbolta, ekki síst í kvöld þegar mestu máli skipti og allt var undir gegn einstaklega öflugu liði Frakka. Ég er svo stoltur,“ sagði Jacobsen sem verður væntanlega tekinn í guða tölu í Danmörku eftir sigurinn á HM í kvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -