Línumaður Þórs, Kostadin Petrov, hefur verið kallaður inn í æfingar með landsliði Norður Makedóníu vegna þátttöku landsliðsins á heimsmeistaramótinu sem hefst í Póllandi og Svíþjóð 11. janúar.
Þórsarar segja frá þessum ánægjulegu tíðindum á Facebooksíðu sínni og láta þess jafnframt...
Vilmar Þór Bjarnason var annar vallaþulurinn á leik ÍBV og Madeira Anderbol í 3. umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik á Madeira í gær. Vilmar Þór er með Eyjaliðinu í för og því þótti gráupplagt til þess að fá hann...
Handknattleiksmarkvörðurinn Einar Baldvin Baldvinsson hefur framlengt samning sinn við Gróttu til tveggja ára, út tímabilið 2024.
Einar Baldvin hefur verið einn besti markmaður Olísdeildarinnar undanfarin tvö ár og var með þriðju bestu hlutfallsmarkvörsluna í Olísdeildinni á síðasta leiktímabili eða...
Það verður á brattann að sækja hjá kvennaliði ÍBV á morgun eftir sjö marka tap í kvöld í fyrri viðureigninni við Madeira Andebol SAD, 30:23, á portúgölsku eyjunni Madeira, sunnarlega í Atlantshafi. Um var að ræða fyrri viðureign liðanna...
Haukar kræktu í tvö stig til viðbótar í keppni sinni í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld þegar enn ein markasúpan var í boði íþróttahúsinu á Torfnesi, heimavelli Harðar. Sigur Haukar var aldrei í hættu. Lokatölur, 43:37, eftir sex...
Haukar höfðu sætaskipti við KA/Þór í Olísdeild kvenna í handknattleik í kvöld eftir að hafa lagt Akureyrarliðið örugglega, 28:20, á Ásvöllum í 8. umferð deildarinnar. Haukar komust þar með í 5. sætið með sex stig eftir níu leiki. KA/Þór...
Ekki tókst ÍBV að leggja stein í götu Íslands- og bikarmeistara Vals í viðureign liðanna í 12. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum. Valsmenn fögnuðu sínum 11. sigri í 12 leikjum, 38:33, þrátt fyrir að Magnús Óli Magnússon,...
Þórey Anna Ásgeirsdóttir átti stórleik fyrir Val þegar liðið vann Selfoss örugglega í Origohöllinni í dag í upphafsleik níundu umferðar Olísdeildar kvenna. Þórey Anna skorað 14 mörk í 15 skotum og geigaði aðeins á einu vítakasti. Valur er áfram...
Handknattleiksþjálfararnir Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson hafa valið leikmenn til æfinga með U19 ára landsliði kvenna dagana 14. – 17. desember. Landsliðshópurinn kom síðasta saman til æfinga í byrjun nóvember.
U19 ára landslið kvenna tekur þátt í Evrópumótinu...
Skjern vann Fredericia Håndboldklub með átta mark mun á heimavelli sínum, 37:29, í 16. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í gær og er þar með áfram í fimmta sæti með 21 stig eftir 16 leiki. Sveinn Jóhannsson kom lítið sem ekkert...
Ekkert virðist getað stöðvað leikmenn HK í Grill 66-deild karla í handknattleik. Leikmenn liðsins unnu sjöunda leik sinn í kvöld er þeir tóku á móti ungmennaliði Vals sem situr í öðru sæti deildarinnar, 30:27. HK hefur þar með fjögurra...
Grótta endurheimti efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í kvöld þegar liðið vann ungmennalið Fram, 31:22, á heimavelli þegar 7. umferð deildarinnar hófst með tveimur leikjum. Í hinni viðureign kvöldsins vann Afturelding stórsigur á Fjölni/Fylki, 39:22. Með sigrinum laumaðist Afturelding...
Tumi Steinn Rúnarsson lék sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu með HSC Coburg í þýsku 2. deildinni í kvöld og fór svo sannarlega vel af stað. Hann skoraði fimm mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar Coburg vann á heimavelli...
Eins árs samningur þýska stórliðsins THW Kiel við franska landsliðsmarkvörðinn Vincent Gérard virðist síst hafa dregið úr vangaveltum og vonum stuðningsmanna liðsins um að Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður íslenska landsliðsins og HBC Nantes komi til THW Kiel. Og það...
Japan og Suður Kórea mætast í úrslitaleik á Asíumóti kvenna í handknattleik á sunnudaginn. Mótið hefur staðið yfir undanfarna daga í Seoul í Suður Kóreu, á slóðum keppnissvæðis Ólympíuleikanna árið 1988.
Það að Japan og Suður Kórea mætast í úrslitaleik...