- Auglýsing -
- Auglýsing -

Leikmaður Þórs kallaður til æfinga fyrir HM

Kostadin Petrov línumaður Þór hefur verið boðaður til æfinga með landsliðinu Norður Makedóníu fyrir HM. Mynd/Skapti Hallgrímsson, Akureyri.net
- Auglýsing -

Línumaður Þórs, Kostadin Petrov, hefur verið kallaður inn í æfingar með landsliði Norður Makedóníu vegna þátttöku landsliðsins á heimsmeistaramótinu sem hefst í Póllandi og Svíþjóð 11. janúar.


Þórsarar segja frá þessum ánægjulegu tíðindum á Facebooksíðu sínni og láta þess jafnframt getið að Petrov og félagar hefji undirbúning fyrir HM 20. desember. Þótt Petrov sé valinn til æfinga er ekki þar með sagt að hann verði í keppnishópnum sem fer á HM en vissulega eru talsverðar líkur á að svo verði. Samkvæmt heimasíðu handknattleikssambands Norður Makedóníu verður 21 leikmaður í æfingahópnum.


Petrov, sem stendur á þrítugu, kom til Þórs í sumar og hafa honum engin bönd haldið til þessa. Petrov hefur skorað 59 mörk í átta leikjum í Grill 66-deildinni auk þess að vera ákafur við varnarleikinn.


Komis til þess að Petrov fari með landsliði Norður Makedóníu á HM er ljóst að Þórsarar leika ekki marga leiki í Grill66-deildinni á meðan. Ekki er einfalt að finna á veraldarvefnum hversu marga landsleiki Petrov hefur leikið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -