- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Svakalegt áfall fyrir Birki

Örvhenta stórskyttan hjá Aftureldingu, Birkir Benediktsson, sleit hásin öðru sinni á keppnistímabilinu á æfingu í fyrradag. Niðurstaða læknisskoðunar staðfesti þessa hryggilegu staðreynd seinni partinn í gær. Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, sagði við handbolta.is fyrir stundu að því miður væri...

Verðum að nýta næstu 20 daga mjög vel

Stjarnan tapaði sínum fjórða leik í röð í Olísdeild kvenna í gærkvöld þegar liðið sótti Fram heim í Safamýri, 29:19. Stjarnan situr í sjötta sæti með 10 stig og er aðeins stigi á undan HK sem á leik til...

Allt er þá þrennt er

„Það var svekkjandi að skora ekki sigurmarkið á síðustu sekúndu. En á móti kemur að við náðum góðu leikhléi og að því loknu að spila okkur í það færi sem vildum ná en markvörður ÍBV varði skotið. Sama gerðist...
- Auglýsing -

Þorðum ekki að skjóta á markið

„Við vorum komin með góða stöðu á kafla, þriggja marka forskot. Síðustu tíu mínúturnar voru erfiðar þar sem okkur tókst varla að leika okkur í færi. Þá var þetta lélegt,“ sagði Hilmar Ágúst Björnsson, annar þjálfara kvennaliðs ÍBV, eftir...

Handvömm kostar sex stig á endasprettinum

Danska úrvalsdeildarliðið Bjerringbro/Silkeborg hefur verið dæmt til að missa sex stig í úrvalsdeildinni í karlaflokki vegna þess að það tefldi fram ólöglegum leikmanni í þremur sigurleikjum. Mál er þannig með vexti að áður en keppnistímabilið hófst í haust þá gerðu...

Molakaffi: Drux úr leik, Yahia Omar, Vaselie og Íslendingar

Paul Drux, leikmaður Füchse Berlín, varð að draga sig út úr þýska landsliðinu sem tekur þátt í forkeppni Ólympíuleikanna um helgina. Drux er meiddur á hné og er á leið í speglun af þeim sökum. Ungverska meistaraliðið Veszprém hefur tryggt...
- Auglýsing -

Magnaður endasprettur Víkings tryggði tvö sæt stig

Magnaður endasprettur Víkinga tryggði liðinu níu marka sigur á Fjölni-Fylki í Grill 66-deild kvenna í handknattleik í kvöld í Víkinni. Víkingsliðið skoraði tíu mörk gegn einu á síðustu tíu mínútum leiksins og er þar með komið með sex stig...

Fram staðfestir komu Einars

Handknattleiksdeild Fram staðfestir í kvöld á Facebooksíðu sinni að Einar Jónsson taki við þjálfun karlaliðs félagsins í sumar af Sebastian Alexanderssyni, rétt eins og handbolti.is greindi frá upp úr hádegi í dag. Forsvarsmenn Handknattleiksdeildar Fram ákváðu að nýta sér...

Afturelding aftur í kjörstöðu

Afturelding vann uppgjör liðanna tveggja sem standa best að vígi í keppninni um farseðilinn upp í Olísdeild kvenna þegar ÍR kom í heimsókn að Varmá í kvöld. Fjögurra marka sigur var niðurstaðan, 26:22, eftir að einnig munaði fjórum mörkum...
- Auglýsing -

Katrín Ósk gerði út um allar vonir Stjörnunnar

Katrín Ósk Magnúsdóttir, markvörður Fram gerði út um allar vonir Stjörnunnar um að fá eitthvað út úr viðureigninni við Fram í Safamýri í kvöld þegar liðin mættust þar í Olísdeild kvenna. Katrín Ósk átti stórbrotin leik í marki Fram-liðsins,...

Aftur gekk gullið tækifæri úr greipum Hauka

Annan leikinn í röð fengu leikmenn Hauka gullið tækifæri á síðustu sekúndu til þess að hirða bæði stigin þegar þeir tóku á móti ÍBV í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld í Olísdeild kvenna í handknattleik. Allt kom fyrir ekki...

Reyna aftur á morgun

Viðureign HK og KA/Þórs í Olísdeild kvenna, sem fresta varð í dag vegna ófærðar, hefur verið sett á dagskrá á morgun klukkan 18. Þetta kemur fram á vef Handknattleikssambands Íslands. https://www.handbolti.is/ka-thor-kemst-ekki-sudur-holtavorduheidi-er-ofaer/ Aðrir leikir sem eru á dagskrá í kvöld eru á...
- Auglýsing -

„Ekki er verra að fá smá pressu“

„Ég mjög spennt fyrir að taka þetta skref,“ sagði Ásdís Þóra Ágústsdóttir handknattleikskona hjá Val í samtali við handbolta.is í framhaldi af fregnum morgunsins um að hún hafi skrifað undir tveggja ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Lugi í Lundi...

KA/Þór kemst ekki suður – Holtavörðuheiði er ófær

Ekkert verður af leik HK og KA/Þórs í Olísdeild kvenna í handknattleik sem fram átti að fara í Kórnum í kvöld. Eftir því sem handbolti.is kemst næst er lið KA/Þórs í Staðarskála í Hrútafirði og fer ekki lengra....

Sebastian sagt upp hjá Fram

Sebastian Alexanderssyni hefur verið sagt upp starfi sem þjálfara karlaliðs Fram í handknattleik og tekur uppsögnin gildi í lok yfirstandandi leiktíðar. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum. Hermt er að Einar Jónsson, fyrrverandi þjálfari karla og kvennaliðs Fram, Stjörnunnar og...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -