Sebastian Alexanderssyni hefur verið sagt upp starfi sem þjálfara karlaliðs Fram í handknattleik og tekur uppsögnin gildi í lok yfirstandandi leiktíðar. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum.
Hermt er að Einar Jónsson, fyrrverandi þjálfari karla og kvennaliðs Fram, Stjörnunnar og Gróttu, verði ráðinn í stað Sebastians. Einar hefur verið þjálfari hjá Bergsöya í Noregi í vetur.
Sebastian tók við þjálfun Fram á síðasta sumri af Halldóri Jóhanni Sigfússyni sem hafði hlaupið í skarðið sem þjálfari um stundarsakir í framhaldi af uppsögn Guðmundar Helga Pálssonar úr starfi þjálfara karlaliðs Fram.
Fram situr í áttunda sæti Olísdeildar af 12 liðum þegar 13 umferðum er lokið.