„Einar Baldvin var reyndar ógeðslega heppinn. Hann fór í vitlaust horn þrisvar sinnum. Enda horfði hann glottandi á mig, var greinilega á guðsvegum þarna,“ segir stórskyttan Rúnar Kárason leikmaður Fram í léttum dúr í samtali við nýjan þátt Handkastsins...
Morgan Marie Þorkelsdóttir gat ekki leikið með Val gegn Fram í fyrstu umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik á laugardaginn vegna meiðsla. Hún hefur ekki jafnað sig eftir að hafa tognað á ökkla skömmu fyrir æfingaferð Valsliðsins til Spánar í lok...
Það var heldur betur fjör í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í handknattleik þegar að átta leikir fóru fram, fimm á laugardegi og þrír á sunnudegi.
Danska liðið Ikast kom heldur betur á óvart þegar að það lagði Evrópumeistara í...
Fréttatilkynning.
Minningartónleikar um handknattleiksþjálfarann Arnar Gunnarsson verða haldnir á Vitanum (Akureyri) laugardaginn 16. september. Viljum við sem að viðburðinum koma heiðra minningu hans og gefa öllum sem þekktu hann tækifæri á að koma saman og eiga góða kvöldstund með uppáhalds...
Óðinn Þór Ríkharðsson reimar vart á sig skóna orðið fyrir minna en 10 mörk í leik. Sú er að minnsta kosti staðreyndin eftir leik dagsins þegar lið hans Kadetten Schaffhausen vann STSV St. Otmar St. Gallen með þriggja marka...
Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson hefur vafalitið hitt á óskastund í dag þegar hann leiddi MT Melsungen til sigurs á meisturum THW Kiel í Wunderino Arena í Kiel að viðstöddum rúmlega 10 þúsund áhorfendum. Lokatölur, 35:30, fyrir Melsungen en leikurinn...
Kvennalið ÍR í handknattleik lék í gær í fyrsta sinn í efstu deild um langt árabil. Mikið var því um dýrðir í Skógarseli þegar ÍR tók á móti Aftureldingu í Olísdeild kvenna. Bæði lið unnu sig upp í deildina...
KA/Þór og ÍBV mættust í upphafsleik Olísdeildar kvenna í handknattleik í KA-heimilinu í gær. Gestirnir frá Eyjum höfðu betur í leiknum svo munaði níu mörkum þegar upp var staðið, 29:20.
Nathalia Soares Baliana var markahæst hjá KA/Þór með fimm...
„Það hafa aldrei fleiri horft á opnunarleik Íslandsmótsins í handknattleik og á leik FH og Aftureldingar. Sexþúsund heimili, einungis með myndlykil frá Símanum. Þá ótalin þau heimili sem horfðu á leikinn í gegnum appletv eða Vodafone myndlykla,“ segir Arnar...
Lið íslensku landsliðsmannanna Kristjáns Arnar Kristjánssonar, Donna, og Viktors Gísla Hallgrímssonar, fóru vel af stað í frönsku 1. deildinni í handknattleik í gær. PAUC, með Donna innanborðs vann Créteil, 32:27, eftir jafna stöðu í hálfleik, 15:15. Donni var á...
Sandra Erlingsdóttir átti stórleik í gær þegar lið hennar Tus Metzingen vann Sport-Union Neckarsulm, 34:20, á útivelli í 1. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik, en segja má að um grannaslag hafi verið að ræða. Bæði lið eru með...
Fredericia HK tyllti sér á topp dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær með sigri á Skjern, 23:20, á heimavelli í 3. umferð. Guðmundur Þórður Guðmundsson er þjálfari Fredericia HK sem hefur fimm stig eftir þrjá leiki. Aalborg og Ribe-Esbjerg...
„Þetta var ótrúlega gaman auk þess sem stemningin og mæting var mjög góð,“ sagði Sara Sif Helgadóttir markvörður Vals í viðtali við samfélagsmiðla félagsins eftir níu marka sigur Íslandsmeistara Vals á Fram, 29:20, í upphafsumferð Olísdeildar kvenna í Origohöllinni...
Selfyssingar náðu sér aldrei á strik í Sethöllinni á Selfossi í dag þegar KA-menn sóttu þá heim. Gestirnir voru mikið sterkari, ekki síst í síðari hálfleik og unnu með sjö marka mun, 30:23, eftir að hafa verið þremur mörkum...
Íslandsmeistarar ÍBV fóru vel af stað í upphafsleik sínum í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld sem um leið var síðasti leikur 1. umferðar. Eyjamenn mættu í Garðabæ og eftir erfiðar fyrstu 20 mínútur leiksins þá tóku þeir völdin...