Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari Fredericia Håndboldklub, stýrði sínum mönnum til sigurs, 35:32, gegn HC Midtjylland á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fredericialiðið var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 19:15.
Einar Þorsteinn Ólafsson, leikmaður Fredericia Håndboldklub, kom lítið við sögu.
Með...
Bjarki Már Elísson og félagar í Veszprém unnu Dinamo Búkarest, 33:30, í viðureign liðanna í Búkarest í kvöld. Bjarki Már skoraði fjögur mörk í leikum.
Dinamo var yfir framan af leiknum og var m.a. með tveggja marka forskot að loknum...
Handbolti.is heldur skrá yfir helstu félagaskipti sem greint hefur verið frá á síðustu mánuðum og vikum meðal handknattleikfólks, jafnt innan lands sem utan. Hér fyrir neðan er það sem hæst ber í félagskiptum á meðal handknattleikskarla og félög hafa...
Ásgeir Snær Vignisson átti tvö markskot sem geiguðu þegar lið hans, Helsingborg, vann Aranäs, 27:23, í þriðju umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í gær. Helsingborg er nýliði í deildinni og hefur farið vel af stað, hefur fjögur stig eftir þrjá leiki.
Hvorki...
Fyrri leikir annarrar og síðari umferðar undankeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fóru fram í kvöld. Hópur íslenskra handknattleiksmanna stóð í ströngu og gekk þeim og liðum þeirra misjafnlega.
Teitur Örn Einarsson var markahæstur hjá Flensburg ásamt Dönunum Johan á Plógv...
Viktor Gísli Hallgrímsson landsliðsmarkvörður í handknattleik og leikmaður franska liðsins Nantes verður frá keppni næstu tvær vikur eftir að hafa meiðst á olnboga á æfingu fyrir tæpri viku.
„Ég fékk slæma yfirspennu á olnbogann á æfingu. Ég verð þar af...
Berta Rut Harðardóttir og félagar í Holstebro eru í efsta sæti 1. deildar kvenna í Danmörku eftir níu marka sigur í heimsókn til Gudme HK á Fjóni í gær, 34:25. Berta Rut skoraði eitt mark í leiknum. Holstebro er...
Bjarki Már Elísson er óðum að sækja í sig veðrið eftir að hafa átt í meiðslum fyrr í þessum mánuði og misst af nokkrum leikjum með ungverska stórliðinu Veszprém. Hann lét sitt ekki eftir liggja í dag þegar Veszprém...
Lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Fredericia Håndboldklub töpuðu á heimavelli fyrir meisturum síðasta árs, GOG, á heimavelli í dag með sex marka mun, 34:28, í fimmtu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Fredericia Håndboldklub var sjö mörkum undir í hálfleik, 20:13.
Einar Þorsteinn ...
Jakob Lárusson er með lið sitt, Kyndil, í efsta sæti úrvalsdeildar kvenna i Færeyjum eftir þriðja sigur liðsins í deildinni í dag. Kyndill lagði þar Stjørnuna í KÍ-høllinni í Klaksvík með 10 marka mun, 33:23. Fimm marka munur var...
Ómar Ingi Magnússon átti enn einn stórleikinn með SC Magdeburg í dag þegar þýska meistaraliðið vann stórsigur á heimavelli gegn GWD Minden, 39:25. Ómar Ingi skoraði níu mörk og var markahæsti leikmaður liðsins. Hann gaf auk þess þrjár stoðsendingar.
Gísli...
Daníel Þór Ingason og Oddur Gretarsson fóru á kostum og báru hreinlega uppi leik Balingen-Weilstetten í gær þegar liðið vann sinn fjórða leik í þýsku 2. deildinni á leiktíðinni og varð um leið fyrst liða til þess að leggja...
Díana Dögg Magnúsdóttir átti annan stórleik í röð með BSV Sachsen Zwickau í gær og skoraði sjö mörk, gaf sex stoðsendingar, átti fjögur sköpuð færi og var valin maður leiksins þegar lið hennar tók á móti Blomberg-Lippe í þriðju...
Tryggvi Þórisson skoraði tvisvar fyrir Sävehof í gær þegar liðið tapaði með sex mörkum í heimsókn til Alingsås, 33:27, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla. Sävehof hefur þrjú stig eftir þrjá leiki.
Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk og gaf fjórar...
Andrea Jacobsen, landsliðskona í handknattleik, var allt í öllu hjá danska 1. deildarliðinu EH Aalborg í dag þegar það vann AGF Håndbold, 29:22, á útivelli í þriðju umferð deildarinnar. Álaborgarliðið var þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11.
Andrea, sem gekk...